Raunveruleikastjarnan Laura Byrne, sem endaði með piparsveininum Matty Johnson í raunveruleikaþættinum Bachelor, er nýjasti gestur hlaðvarpsins I’ve Got News For You. Í hlaðvarpsþættinum ræðir Byrne um ónafngreindan fyrrverandi kærasta sinn en hún var í sambandi með honum í 6 ár áður en hún fann ástina með Matty í raunveruleikaþættinum vinsæla.
Byrne segir frá ansi furðulegri kynlífsbón sem hún fékk frá fyrrverandi kærastanum. Hún segir að kærastinn hafi viljað „stunda kynlíf með sér allri“ og í kjölfarið hafi hann komið með þessa furðulegu bón, það er að stunda kynlíf með hnésbótinni hennar. „Á þeim tíma var ég upp með mér,“ segir Byrne sem samþykkti að láta reyna á þetta.
Hún útskýrir svo hvernig þetta gekk fyrir sig. „Hann lét mig beygja hnéð mitt og svo tróð hann typpinu sínu á milli,“ segir hún en útskýringin kom flatt upp á vinkonu hennar og kollega, Brittany Hockley, sem var einnig gestur í þættinum. „Já, vá, það er ástæðan fyrir því að annar fóturinn þinn er svona vöðvastæltur,“ sagði Hockley í háði.