fbpx
Miðvikudagur 08.maí 2024
Fókus

„Ég neitaði að trúa því að þetta væri að gerast, ég á leiðinni á stórmót og hann skildi mig bara eftir“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 23. apríl 2021 11:29

Ólafur Stefánsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafur Stefánsson, einn þekktasti handboltamaður Íslandssögunnar er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Í þættinum ræðir Ólafur Stefánsson meðal annars um vin sinn, körfuboltaþjálfarann umdeilda, Brynjar Karl Sigurðsson.

„Binni er bara „Navy Seal“ gaur. Hann bauð mér einu sinni upp í sumarbústað, korteri fyrir Ólympíuleikana í London. Ég hef aldrei verið í eins góðu formi. Svo segir hann, eigum við ekki að henda okkur í fjallgöngu. Svo byrjar hann í smá keppni og segir: „Gaur, eigum við ekki aðeins að flýta okkur?“ Og ég svara bara játandi og eins og ég segi, var í formi lífs míns. Ég fer að reyna að halda í við hann, en hann bara skilur mig eftir. Ég neitaði að trúa því að þetta væri að gerast, ég á leiðinni á stórmót og hann skildi mig bara eftir. Þetta var óþægilegur sannleikur fyrir mig og sama gerði hann þegar ég var að byrja með fyrirtæki. Við fórum saman á Þingvelli og vorum og hann hraunaði yfir mig og sýndi mér að ég væri bara í „LaLa-landi“ með þessar hugmyndir mínar. Fyrsta varnarviðbragðið hjá manni er auðvitað að hugsa bara að maðurinn sé hálfviti og ég fór heim. Við ætluðum að gista saman nokkrar nætur, en ég þoldi bara einn sólarhring. Eftir á að hyggja var allt rétt sem hann sagði,“ segir Ólafur, sem skilur vel að bíómyndin „Hækkum Rána“ hafi valdið miklu umtali á Íslandi.

„Við erum ekki með West-Point á Íslandi að berjast við Rússa eða Kínverja allan daginn, þannig að við þekkjum ekki alveg að eiga við fólk sem er með „Navy Seal“ nálganir á hlutina eins og Brynjar. Þannig að auðvitað bregður fólki að sjá svona mann þjálfa ungar stelpur. En Binni ver sig sjálfur og er alls ekki að mæla með að aðrir þjálfi eins og hann. En það er fólk eins og hann sem fær okkur til að hugsa og gagnrýna hlutina og velta upp einhverju sem hefur kannski bara legið í einhverjum drullupolli í lengri tíma.“

Mikilvægt að hafa hugrekki

Ólafur, sem er einn besti handboltamaður allra tíma, ræðir líka í þættinum um mikilvægi þess að hafa hugrekki til að elta drauma sína og þora að skoða lífið.

„Lífið er stundum eins og í Hobbitanum, Þegar Gandálfur bankar. Þú ert með allt til alls, brauð og bjór og allt „settlað“ og svo koma allt í einu einhverjir dvergar og segja þeir séu að fara í ævintýri og þú eigir að koma með. Af hverju ætti maður að fara með í ævintýri þegar maður hefur allt, makinn er þokkalegur og allt í fínu. Þú getur bara farið á KFC og verið heima. En það er kannski tálsýn okkar að við teljum okkur vita allt, en við reiknum ekki með að þegar þú ert 19 ára slítur þú krossband, þegar þú ert 22 missir þú afa þinn sem þér þótti vænst um af öllum, þegar þú ert 25 ára, þá kemur Covid og svo framvegis…..Við erum með kerfi sem er þannig að til þess að koma í veg fyrir einhvern skaða hjá þér er helsta leiðin að byggja kastala í kringum þig, svo að þú lendir ekki í neinu. En ef þú ofverndar einhvern of mikið fyrir heiminum mun það koma í bakið á viðkomandi. Lífið mun alltaf koma með óvænta hluti.“

Setja börn í hermi

Í þættinum ræða Ólafur einnig um það hvort hugsanlega gæti verið betra að byrja að æfa börn meira fyrir því sem mun gerast í lífinu með því að setja þau í eins konar flughermi sem reynir á þau í vernduðum aðstæðum.

„Í augnablikinu gegnum allan okkar grunnskóla og menntaskóla erum við eiginlega með núll hermi, en leggjum alla áherslu á upplýsingar. Ég held við þurfum að fara að prófa okkur meira áfram með að setja meira af aðstæðum sem kunna að koma upp í lífinu inn í skólana. En þegar við förum að skoða þessa hluti meira inn í menntakerfinu og gera tilraunir, þá verðum við líka að vera með foreldra sem skilja hvað er í gangi og hafa upplifað hluti. Eðlilega er  fyrsta viðbragð foreldra alltaf að vernda barnið sitt, en við þurfum að fara að brjóta hlutina meira upp.“

Í þættinum ræða hann og Sölvi um mikilvægi þess að elta draumana, hlutverk kynjanna í nútímanum, ferðalög Ólafs í lífinu og margt fleira.

Þáttinn í heild má sjá hér að neðan. Þú getur einnig hlustað á hann á Spotify.

https://www.youtube.com/watch?v=HOTNPamLXRY

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Silva aftur heim
Fókus
Í gær

Einar Ágúst þurfti að endurskoða líf sitt eftir að hafa greinst með alvarleg veikindi í fyrra

Einar Ágúst þurfti að endurskoða líf sitt eftir að hafa greinst með alvarleg veikindi í fyrra
Fókus
Í gær

„Ég hugsaði um að draga mig út þegar stríðið á Gaza braust út en á sama tíma vildi ég taka pláss og nota röddina mína“

„Ég hugsaði um að draga mig út þegar stríðið á Gaza braust út en á sama tíma vildi ég taka pláss og nota röddina mína“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sonur Birgittu Lífar og Enoks kominn með nafn

Sonur Birgittu Lífar og Enoks kominn með nafn
Fókus
Fyrir 2 dögum

TikTok-stjarnan lést á afmælisdegi kærastans

TikTok-stjarnan lést á afmælisdegi kærastans
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sjónvarpssería um ævintýralegan feril Jósafats Arngrímssonar

Sjónvarpssería um ævintýralegan feril Jósafats Arngrímssonar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Katrín og Vilhjálmur að „ganga í gegnum helvíti“

Katrín og Vilhjálmur að „ganga í gegnum helvíti“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Britney rýfur þögnina eftir meint hörkurifrildi hennar og kærastans – „Ég veit að mamma mín tengist þessu!“

Britney rýfur þögnina eftir meint hörkurifrildi hennar og kærastans – „Ég veit að mamma mín tengist þessu!“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Háklassa vændiskona fékk 650 þúsund krónur fyrir fjögurra tíma vinnu – „Ég myndi aldrei mæla með þessu starfi fyrir einhvern“

Háklassa vændiskona fékk 650 þúsund krónur fyrir fjögurra tíma vinnu – „Ég myndi aldrei mæla með þessu starfi fyrir einhvern“