Manuela Ósk Harðardóttir, athafnakona og framkvæmdastjóri Miss Universe Iceland, svarar spurningum fylgjenda á Instagram um fegurðarkeppnina.
Hún var spurð af hverju mæður mega ekki taka þátt í keppninni, en aðeins barnlausar konur á aldrinum 18-28 ára mega taka þátt.
„Því miður eru þetta enn reglur sem Miss Universe Organization setur – að keppendur séu ógiftar og barnlausar. Við getum því ekki sent stelpu út sem uppfyllir ekki þessar kröfur. Ég vona svo innilega að þessu verði breytt í nánustu framtíð,“ segir Manuela.
Hún útskýrir nánar. „Sú sem vinnur Miss Universe flytur strax til New York og skrifar undir samning við IMG um að vinna fyrir þá í heilt ár – og ferðast um allan heim, stundum til margra landa í viku jafnvel. Þeir telja það erfiðara fyrir konu með börn og þess vegna eru reglurnar svona,“ segir Manuela og heldur áfram.
„Ég er ekki endilega sammála og aðstæður eru mismunandi. Skiljanlega hentar þetta starf kannski ekki konu með ungabarn en aðstæður eru mismunandi og mér finnst tími til að þessar reglur fái að víkja. En ég stjórna víst engu um það.“
Sjá einnig: Fegurðardrottningar selja fötin sín til styrktar Píeta samtakanna
Miss Universe Iceland keppnin verður haldin í Gamla Bíó þann 29. september næstkomandi. Hægt er að kaupa miða á Tix.is.
Sjá einnig: Þessar stúlkur taka þátt í Miss Universe Iceland 2021