fbpx
Mánudagur 06.maí 2024
Fókus

Steindi Jr. fékk nikótíneitrun eftir ofnotkun rafrettupenna – „Fékk ógeðslega háan hita og varð grár í framan“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 15. september 2020 08:51

Steindi Jr. Mynd/DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Steinþór Hrórar Steinþórsson, eða Steindi Jr, er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Steindi, sem er löngu orðinn landsþekktur fyrir grín, söng og margt fleira, segir frá tímabilinu þegar hann lék í „Undir Trénu“.

„Þetta var drulluerfitt, en ógeðslega gaman og ég væri mjög mikið til í að fá að gera þetta aftur. En þetta var líka bara erfiður tími hjá mér. Ég var nýbúinn að eignast barn og var aldrei heima. Það er ógeðslega erfitt af því að manni líður eins og maður sé svo lélegur pabbi. Og ég var akkúrat líka að leika mann í myndinni sem fékk ekki að hitta dóttur sína, á sama tíma og ég sá eiginlega aldrei dóttur mína af því að hún var sofandi þegar ég fór út á morgnana og sofnuð þegar ég kom heim á kvöldin,“ segir Steindi og heldur áfram:

„Þetta var bara svolítið þungt allt, af því að ég var líka svo efins um hvort ég væri að gera þetta nógu vel. Ég hef tilhneigingu til að efast um mig og það hrjáir mig stundum. Þetta var líka bara reynsluleysi. Ég kunni ekki að sleppa dögunum þegar þeir voru búnir. Ef Siggi Sigurjóns til dæmis er að leika eitthvað hlutverk, einn af okkar bestu leikurum, þá mætir hann bara á sett, leikur það, fer svo út í bíl og hreinsar það. En ég kunni það ekkert og fékk þetta svolítið á heilann. En mig langar samt mikið að gera þetta aftur af því að þetta var rosalega gaman líka.“

Nikótín-eitrun

Steindi segir Sölva einnig frá því hve sólginn hann hefur verið í nikótín á löngum köflum, sem einu sinni endaði með ósköpum.

„Áður en „veipið“ kom hingað til lands, þá kom félagi minn frá Danmörku með „veip-penna“ til Íslands og sagði við mig að ég mætti reykja þetta alls staðar. Ég var ógeðslega peppaður og fékk að eiga pennann og var með vökva sem voru ógeðslega sterkir, þetta var alveg grjóthart. Ég reykti alls staðar, ég reykti í bíó, heima, í bílnum, ég var alltaf með pennann og að reykja sígarettur líka ofan í þetta. Síðan eftir einhverja þrjá daga, þá fékk ég ógeðslega háan hita og varð grár í framan, ég var eins og nafnspjald í framan. Ég er ekki að djóka Sölvi, það lak úr mér og það kom í ljós að ég var kominn með nikótín-eitrun. Ég reykti mig í nikótín eitrun. Liðið þarna uppfrá [á spítalanum] heyrir ekkert um svona lagað á hverjum degi. Þetta var agalegt,“ segir hann.

Skrautlegur ferill

Steindi fer einnig yfir feril sinn, sem hefur oft á tíðum verið ansi skrautlegur.

„Ég gaf út blað sem hét Lókal. Ég og félagi minn Hilmar Gunnarsson, við ákváðum að gera dagblað fyrir unga fólkið í Mosfellsbæ og gáfum allt í allt út tólf tölublöð. En það var nánast ekki stafur í blaðinu sem meikaði sens. Það var fullt af viðtölum í blaðinu, en viðtölin voru aldrei tekin. Það var bara tekin mynd af fólki, bara mynd af einhverjum Mosfellingi, jafnvel bara opnuviðtal, sem viðkomandi tók aldrei þátt í. Það voru bara spurningar og svör og allur pakkinn án þess að umfjöllunarefnið hefði tekið neinn þátt. Mannskapurinn tók misvel í þetta. Þetta var stundum vesen og það var ekki heil brú í þessu blaði. En við gerðum þetta í eitt ár og þetta var rosalega gaman,“ segir hann.

Í viðtalinu ræða Steindi og Sölvi enn frekar um stórmerkilegan feril Steinda, mikilvægi þess að hafa ástríðu fyrir hlutunum, leikstjóradraumana og margt margt fleira.

Viðtalið í heild má sjá hér að neðan. Þú getur einnig hlustað á viðtalið á Spotify.

https://www.youtube.com/watch?v=DVeah7zxMi0&t=1462s

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Gervigreind spilar nýtt hlutverk í tattúbransanum – „Þetta er algjör snilld stundum, en svo finnst mér þetta líka svolítið ógnvekjandi“

Gervigreind spilar nýtt hlutverk í tattúbransanum – „Þetta er algjör snilld stundum, en svo finnst mér þetta líka svolítið ógnvekjandi“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Er Stórfótur raunverulegur og hvers vegna nær enginn að fanga hann á góðri mynd?

Er Stórfótur raunverulegur og hvers vegna nær enginn að fanga hann á góðri mynd?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vilhjálmur ætlar að sniðganga Harry í væntanlegri heimsókn – Yngri prinsinum ekki einu sinni boðin gisting

Vilhjálmur ætlar að sniðganga Harry í væntanlegri heimsókn – Yngri prinsinum ekki einu sinni boðin gisting
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ragnhildur kemur Baldri til varnar – „Ætlum við líka að hamra á frambjóðendum sem hafa farið inn á strippstaði?“

Ragnhildur kemur Baldri til varnar – „Ætlum við líka að hamra á frambjóðendum sem hafa farið inn á strippstaði?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Baldvin Z man nákvæmlega daginn sem hann varð vitni að flugslysi

Baldvin Z man nákvæmlega daginn sem hann varð vitni að flugslysi
Fókus
Fyrir 4 dögum

Karlmenn lýsa skelfilegri aukaverkun af Ozempic – „Þú getur sagt bless við kynlíf“

Karlmenn lýsa skelfilegri aukaverkun af Ozempic – „Þú getur sagt bless við kynlíf“