Eliza Reed og Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, settu formlega af stað markaðsátakið Fishmas í gær. Átakið er unnið fyrir erlendan markað til að auka vitund fólks um gæði og heilnæmi íslensks fisks en vert er að hafa í huga að 98% af íslensku sjávarfangi er selt á erlendum markaði og því verkefnið verðugt.
Það fór vel á með forsetafrúnni og framkvæmdastjóranum er þær gæddu sér meðal annars á fiskréttum sem má finna uppskriftir að inni á heimsíðu verkefnisins www.fishmas.com