Kanadíska fyrirsætan Khloe Terae heimsótti Ísland ekki alls fyrir löngu þar sem hún sat meðal annars fyrir á myndum við Jökulsárlón. Khloe þessi er ein þekktasta fyrirsæta Kanada en hún er með um 2,3 milljónir fylgjenda á Instagram.
Khloe er 26 ára og hefur komið víða við á ferli sínum sem fyrirsæta. Hún hefur til dæmis setið fyrir á síðum tímaritanna Playboy og Maxim svo dæmi séu tekin. Móðir hennar var einnig fyrirsæta á sínum tíma og vann til dæmis fyrir ítalska tískuhúsið Versace.
Óhætt er að segja að myndir Khloe frá Íslandsferðinni hafi fallið vel í kramið hjá fylgjendum hennar. „Það er engin furða að ísinn er að bráðna,“ segir til dæmis einn af fylgjendum hennar en myndirnar má sjá hér að neðan.
View this post on Instagram
Not the kinda girl that can sit still for very long, always ready for the next adventure. 🇮🇸