Egill Ploder Ottóson, einn eigandi Áttan Miðlar, situr fyrir svörum í Blaðrað hjá RÚV núll. Egill er vanur að vera hinum megin við borðið en hann er þáttastjórnandi Burning Questions þar sem hann spyr viðmælendur erfiðra spurninga.
Nú fær hann að setja sig í spor viðmælanda sinna og viðurkennir meðal annars að hafa notað nafn sitt til að koma sér fram fyrir röðina á skemmtistöðum.
Egill fær svo spurningu sem hann á erfitt með að svara: „Hver er leiðinlegasti viðmælandinn sem þú hefur fengið í Burning Questions?“
„Þessi er skemmtileg,“ segir Egill.
„Djöfull eruð þið að setja mig í erfiða stöðu hérna maður. Ókei sko, ég get alltaf sagt Nökkvi Fjalar. En það er ógeðslega leiðinlegt að segja það, því það er mitt „go-to.“ En þar sem ég er oft að setja fólk „on the spot“ verð ég þá ekki að svara þessu almennilega?“
En Egill getur ekki svarað.
„Ég get það ekki sko, ég get ekki sagt það,“ segir hann og setur handfylli af konfettí upp í sig.
Horfðu á myndbandið hér að neðan.