fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fókus

Hádegistónleikar í Hafnarborg – Elsa Waage

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 6. nóvember 2018 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag kl. 12 kemur mezzosópransöngkonan Elsa Waage fram á hádegistónleikum í Hafnarborg ásamt Antoníu Hevesi píanóleikara. Á tónleikunum sem bera nafnið Skömm og örlög flytja þær aríur eftir G. Bizet, G. Puccini og R. Wagner sem skrifaðar eru fyrir djúpar kvennmannsraddir. Einnig verða flutt tvö íslensk lög sem oftast eru flutt af karlmönnum.

Elsa Waage lauk námi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Elísabetar Erlingsdóttur og fór síðar í framhaldsnám í Washington D.C. þaðan sem hún lauk B.M. –prófi í tónlist við Catholic University of America. Elsa hefur sungið ýmis óperuhlutverk bæði hér á landi og erlendis og á undanförnum árum hefur hún lagt áherslu á tónleikahald og komið fram með sinfóníuhljómsveitum og undirleikurum á Íslandi, Evrópu og í Bandaríkjunum. Elsa söng hlutverk Azucenu í Il Trovatore eftir Verdi haustið 2012 og var tilnefnd  til Íslensku tónlistarverðlaunanna og Grímunnar fyrir þann flutning. Hún flutti hlutverk Helgu Magnúsdóttur í óperunni Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson árið 2014 hjá Íslensku óperunni. Elsa hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir flutning sinn á verkum Gustavs Mahler, Das Lied von der Erde, med Carinthiu-sinfóníuhljómsveitinni í Austurríki. Elsa hefur komið fram í sjónvarpi og útvarpi bæði á Íslandi, Ítalíu, Mexókó og Færeyjum.

Antonía Hevesi píanóleikari hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg og valið með sér marga af fremstu söngvurum landsins.

Hádegistónleikar eru á dagskrá Hafnarborgar fyrsta þriðjudag hvers mánaðar yfir vetrartímann. Þeir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund. Húsið opnar kl. 11:30 og tónleikarnir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur er ókeypis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Jóel fór með pakka til ókunnugs 7 ára drengs – „Hún féll og hendir honum út um miðja nótt, korter í jól“

Jóel fór með pakka til ókunnugs 7 ára drengs – „Hún féll og hendir honum út um miðja nótt, korter í jól“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þórðargleði þegar ljóst varð að Timothée Chalamet fengi ekki Óskarinn – En hvers vegna snerist fólk gegn leikaranum?

Þórðargleði þegar ljóst varð að Timothée Chalamet fengi ekki Óskarinn – En hvers vegna snerist fólk gegn leikaranum?
Fókus
Fyrir 2 dögum

Louis Theroux nefnir verstu manneskju sem hann hefur tekið viðtal við

Louis Theroux nefnir verstu manneskju sem hann hefur tekið viðtal við
Fókus
Fyrir 2 dögum

Lára gáttuð á verðlaunum sem fjögurra ára sonur hennar fékk á fótboltamóti um helgina

Lára gáttuð á verðlaunum sem fjögurra ára sonur hennar fékk á fótboltamóti um helgina
Fókus
Fyrir 4 dögum

Stutt upptaka úr Ring-myndavél setti af stað óvænta atburðarás

Stutt upptaka úr Ring-myndavél setti af stað óvænta atburðarás
Fókus
Fyrir 4 dögum

Harrison Ford kom með óvænta kynlífsjátningu – „Að sjálfsögðu hef ég gert það“

Harrison Ford kom með óvænta kynlífsjátningu – „Að sjálfsögðu hef ég gert það“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Setur í ljósi sögunnar spurningarmerki við yfirlýsingu RÚV – „Hefur hvorki fjallað um málið né birt tilkynningu“

Setur í ljósi sögunnar spurningarmerki við yfirlýsingu RÚV – „Hefur hvorki fjallað um málið né birt tilkynningu“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Segir ástarsambandið við Scorsese hafa haft fleiri lög en lasagna

Segir ástarsambandið við Scorsese hafa haft fleiri lög en lasagna