fbpx
Föstudagur 03.maí 2024
Fókus

„Ég ætla að taka á mig skömmina og standa með mér og barninu mínu. En ég veit að ég verð útskúfuð“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 1. október 2018 08:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

UN Women vekja athygli á He for She, átaki um kynbundið ofbeldi, með nýrri auglýsingu þar sem tólf karlmenn lesa upp frásagnir kvenna sem hafa upplifað ofbeldi. UN Women vilja með átakinu vekja karlmenn til vitundar um mikilvægi þess að þeir beiti sér markvisst gegn ofbeldi gegn konum og fordæmi það.

Sögur kvennanna komu frá Íslandi, Víetnam, Úsbekistan, Gambíu og Mjanmar.

Lestu einnig: Ólafur og Króli brotnuðu saman við lestur frásagna kvenna – „Þegar þú ert þvinguð í hjónaband fær karlinn sjálfkrafa rétt til að nauðga þér daglega“

Hér á eftir fer frásögn Khadija Róhingjakonu frá Mjanmar:

Lífið var orðið nokkuð gott. Ég var 17 ára og nýbúin að giftast eiginmanni mínum þegar hann var myrtur af Mjanmarska hernum. Þeir ruddust inn á heimili okkar, myrtu eiginmann minn fyrir framan mig. Ég reyndi að flýja, náði að hlaupa út úr húsinu í áttina að skóginum þar sem þeir náðu mér.

Einn af þeim nauðgaði mér. Hinir horfðu á. Ég skammast mín. Ég vissi að ég yrði útskúfuð. Í dag er ég ólétt. Þegar barnið fæðist, verður það mitt. Ég hef ákveðið að elska þetta barn. Sama hver faðirinn er. Ég ætla að taka á mig skömmina og standa með mér og barninu mínu. En ég veit að ég verð útskúfuð.

Khadija er ein af þeim mörgu hugrökku sem þurft hefur að þola gróft ofbeldi í kjölfar ógnar og þjóðernishreinsana Mjanmarska hersins gagnvart Róhingjum. Mikil skömm fylgir því að ganga með og eiga barn í kjölfar nauðgunar. Skömmin gerir Róhingjakonum erfitt fyrir að viðurkenna þungunina og staðreyndin er sú að margar Róhingjakonur, sérstaklega unglingsstúlkur, reyna eftir fremsta megni að fela að þær séu óléttar og leita sér ekki læknis- og fæðingaraðstoðar, af ótta við skömmina sem því fylgir. Khadija er ein af um 80 þúsund Róhingjakonum sem bera barn undir belti í kjölfar ofsókna, ofbeldis og skipulagðra nauðgana Mjanmarska hersins.

Lestu einnig: „Ég hef ekki vald í dag til að vernda barnið mitt og heimili fyrir ofbeldi en við sitjum uppi með afleiðingarnar“

UN Women hvetur alla til að taka þátt og fordæma kynbundið ofbeldi í nafni; mömmu, systur, eiginkonu, vinkonu, dóttur þinnar eða allra kvenna á heimasíðu unwomen.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Baldvin Z man nákvæmlega daginn sem hann varð vitni að flugslysi

Baldvin Z man nákvæmlega daginn sem hann varð vitni að flugslysi
Fókus
Í gær

Karlmenn lýsa skelfilegri aukaverkun af Ozempic – „Þú getur sagt bless við kynlíf“

Karlmenn lýsa skelfilegri aukaverkun af Ozempic – „Þú getur sagt bless við kynlíf“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég er náttúrlega helvítis aumingi eins og Íslendingar að nenna ekki að mótmæla“

„Ég er náttúrlega helvítis aumingi eins og Íslendingar að nenna ekki að mótmæla“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Mistök að veita Britney frelsi, segir geðlæknir – „Hún er stjórnlaus“

Mistök að veita Britney frelsi, segir geðlæknir – „Hún er stjórnlaus“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sextug kona sigraði í fegurðarsamkeppni

Sextug kona sigraði í fegurðarsamkeppni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sigríður Dögg í óheppilegum árekstri við hunangsflugu – Á lífi en særð eftir atganginn

Sigríður Dögg í óheppilegum árekstri við hunangsflugu – Á lífi en særð eftir atganginn