fbpx
Sunnudagur 11.maí 2025

Kreppa hjá fíkniefnasölum

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 29. mars 2020 10:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru líklega fáir á landinu sem ekki hafa fundið fyrir neinum áhrifum af COVID-19 faraldrinum og ljóst að atvinnuhorfur margra eru mun dekkri en í ársbyrjun. Hins vegar verður hópur, sem fáir höfðu kannski hugsað til fyrr en í þessari viku, líka fyrir áhrifum. Þar er um að ræða fíkniefnasala. Nú er samkomubann og skemmtanalífið á landinu hefur smækkað niður í öreindir. Einnig fyrirbyggja höft á samgöngum milli landa væntanlega ólöglegan innflutning á slíkum efnum. Eiturefnasalar eru því að lenda í hvoru tveggja birgðaskorti og stórminnkaðri eftirspurn. Þetta er hópur sem getur að líkindum ekki nýtt sér neitt af þeim úrræðum sem ríkið hefur boðað til að styðja launþega og launagreiðendur á þessum tímum. Varla sækja eiturefnasalar um atvinnuleysisbætur? Því þurfa neytendur fíkniefna líklega að sætta sig við að verð á fíkniefnum rjúki upp úr öllu valdi. Æ æ.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Voru mjög nálægt því að semja við Van Dijk – ,,Höfðum mikinn áhuga“

Voru mjög nálægt því að semja við Van Dijk – ,,Höfðum mikinn áhuga“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

,,Hann var sá eini sem reyndi að tala við mig, koma til mín og bjóða mér í mat“

,,Hann var sá eini sem reyndi að tala við mig, koma til mín og bjóða mér í mat“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Sjáðu X færsluna sem vakti gríðarlega athygli – Baunaði á andstæðingana í beinni og fékk þetta í andlitið

Sjáðu X færsluna sem vakti gríðarlega athygli – Baunaði á andstæðingana í beinni og fékk þetta í andlitið
Eyjan
Fyrir 7 klukkutímum

Heiðrún Lind um auglýsingarnar umdeildu: „Fátt sem að við höfum gert sem ákveðnum aðilum líkar vel við”

Heiðrún Lind um auglýsingarnar umdeildu: „Fátt sem að við höfum gert sem ákveðnum aðilum líkar vel við”
Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Vísindamenn segja þetta vera eina dýrið sem gæti lifað heimsendi af

Vísindamenn segja þetta vera eina dýrið sem gæti lifað heimsendi af
Fókus
Fyrir 11 klukkutímum

Gekk brösuglega í fyrstu að ganga í augun á unnustunni: „Ég veit ekki hvort þetta var besta stefnumótið“

Gekk brösuglega í fyrstu að ganga í augun á unnustunni: „Ég veit ekki hvort þetta var besta stefnumótið“