fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Vantraustsyfirlýsing frá Seðlabankanum

Ritstjórn DV
Föstudaginn 2. ágúst 2019 09:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Seðlabanki Íslands hefur stefnt blaðamanni Fréttablaðsins til að hindra aðgang hans að upplýsingum um samning sem Már Guðmundsson seðlabankastjóri gerði við starfsmann bankans. Fyrst var óskað eftir upplýsingum í haust, en SÍ neitaði að veita þær. Þá leitaði blaðamaður til úrskurðarnefndar um upplýsingamál, sem átta mánuðum síðar úrskurðaði að SÍ bæri að veita upplýsingarnar. Ljóst er að Seðlabankinn unir þeim úrskurði ekki. Með framlagningu stefnu hefur Seðlabanki Íslands því lýst yfir vantrausti á hæfi úrskurðarnefndarinnar til að túlka upplýsingalög. Auk þess er ámælisvert að átta mánuðir hafi liðið þar til úrskurðarnefndin kvað upp úrskurðinn. Réttur fjölmiðla og almennings til upplýsinga frá stjórnvöldum á að tryggja gagnsæi og auka traust. Þessi réttur veikist mikið ef stjórnvald getur tafið málið með neitun einni saman. Auk þess er það í engu samræmi við málshraðareglu stjórnsýsluréttar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum