Það virtist vera að birta til hjá Sigmundi Davíð og félögum í Klaustursmálinu í gær, miðvikudag. Þingmennirnir voru komnir með tækifæri til að klína versta munnsöfnuðnum á hvorn annan og láta eins og þeir væru einhver fórnarlömb í málinu. Einnig voru gerðar kunnuglegar tilraunir til að gera málið flokkspólitískt og koma því ofan í hefðbundnar skotgrafir. Lilja Alfreðsdóttir valtaði yfir það allt í Kastljósviðtalinu um kvöldið. Nú verður forvitnilegt að fylgjast með hvernig Miðflokksmenn ætla að grafa sig upp núna.