Vegagerðin móðgaðist nokkuð þegar blaðamaður Fréttablaðsins sagði að það ætti að flengja alla yfirmenn í Vegagerðinni eða reka þá. G. Pétur Matthíasson upplýsingafulltrúi skrifaði á móti að þetta hlyti að vera kaldhæðni þar sem margt hefði áunnist á síðustu árum í að bæta okkar 13 þúsund kílómetra langa vegakerfi. Margir eru þó á þeirri skoðun að gera megi mun betur, bæði hjá Vegagerðinni og af hálfu fjárveitingarvaldsins. Það tæki líka dágóðan tíma að flengja alla yfirmenn Vegagerðarinnar, þar starfa rúmlega 300 starfsmenn, 105 eru skráðir á vef Vegagerðarinnar, þar af eru 43 „stjórar“ og 13 „forstöðumenn“.