Þórólfur Matthíasson: Jaðarskatturinn á ellilífeyrisþega getur verið 70-80 prósent – þekkist hvergi á byggðu bóli

Jaðarskatturinn á ellilífeyrisþega á tilteknum tekjubilum er á bilinu 70-80 prósent, sem þekkist hvergi annars staðar á byggðu bóli lengur. Ástæðan fyrir því er mikið til sú að Skatturinn og Tryggingastofnun líta á verðbætur sem vaxtatekjur. Mikilvægt er að kafa ofan í þessi mál til að gera bót á.

Þórólfur Matthíasson: Hringl og stytting í skólakerfinu ekki til bóta – vantar yfirsýn yfir skólastigin hér á landi

Stytting framhaldsskólans tók ekki tillit til þess hve mikill munur er á nýtingu skólaársins hér á alandi og t.d. í Danmörku. Þegar taldir eru kennsludagar til stúdentsprófs kemur í ljós að íslenskir framhaldsskólanemendur þurftu eiginlega þetta aukaár í framhaldsskóla sem áður var hér en er nú búið…

Tekjur Íslendinga 2023: Milliliðakóngarnir í landbúnaðinum maka krókinn – Alþingi rétti þeim ölmusu í vor

Á vordögum breytti Alþingi búvörulögum á þann hátt að afurðastöðvar í landbúnaði voru undanþegnar samkeppnislögum. Atvinnuveganefnd þingsins tók stjórnarfrumvarp sem átti að veita ákveðnar undanþágur til sameiningar afurðastöðva að því tilskyldu að þær væru undir stjórn bænda en nefndin breytti frum…

Rúmlega 12 milljarða gjaldþrot dótturfélags Landsbankans

Skiptum er lokið í þrotabúi Lindir resources ehf, fjárfestingafélagi sem var að stærstum hluta í eigu Landsbanka Íslands. Félagið, sem sérhæfði sig í fjárfestingum í orkuiðnaði og náttúruauðlindum, var úrskurðað gjaldþrota þann 20. febrúar síðastliðinn. Lýstar kröfur í búið voru alls 12.124.264.

Formaður Neytendasamtakanna: Háir stýrivextir virka ekki – fjármagnseigendur maka krókinn og almúginn hrekkst í verðtryggð lán

Hástýrivaxtastefna Seðlabankans hefur beðið skipbrot vegna þess að ekki hefur dregið úr verðbólguvæntingum og einkaneysla hefur ekki dregist saman. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir háa vexti Seðlabankans gera það að verkum að fjármagnseigendur maki krókinn og skuldandi almúginn ney…