fbpx
Mánudagur 16.mars 2026
Eyjan

Björn Jón skrifar: Þekking í stað tilfinninga

Eyjan
Sunnudaginn 15. mars 2026 15:00

Lorelei í túlkun þýska málarans Theodore Kaufmann. Hann tók þátt í byltingunni í Saxlandi 1848 og flúði í kjölfarið til Bandaríkjanna þar sem hann vann að list sinni, málaði meðal annars frægar orrustur þrælastríðsins. Hann lést í hárri elli í New York-borg árið 1896.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síðastliðinn miðvikudag voru liðin rétt fimmtán ár frá kjarnorkuslysinu í Fukushima í Japan. Öflugur landskjálfti og flóðbylgja sem honum fylgdi ollu algjöru rafmagnsleysi svo þrír kjarnaofnar bræddu úr sér. Alls var 470 þúsund manns gert að yfirgefa heimili sín og miklar efnahagsþrengingar fylgdu í kjölfarið. Slysið vakti ugg víða um heim — ekki hvað síst óttuðust menn geislun frá kjarnorkuverinu en í fréttaskýringu sem birtist í Welt í liðinni viku kemur fram að engin staðfest dauðsföll séu tengd geisluninni sem barst frá verinu. Aftur á móti hafi fjölmargir látið lífið af völdum rýmingarinnar, sér í lagi aldraðir og sjúkir. Mun fleiri hafi þó beðið bana af völdum landskjálftans sjálfs og fljóðbylgjunnar sem fylgdi. Lærdómur Japana af slysinu var að auka öryggisráðstafanir í kjarnorkuverum og til stendur að endurræsa kjarnaofna Fukushima-orkuversins í náinni framtíð. Ríkisstjórn Þýskalands, undir forystu Angelu Merkel kanslara, tók aftur á móti ákvörðun um að loka síðustu kjarnorkuverum þar í landi í kjölfar Fukushima-slyssins.

Einhver öruggustu kjarnorkuver heims

Afleiðingum kjarnorkuslyssins eru gerð góð skil í grein sem birtist í Welt síðastliðinn föstudag eftir þau Önnu Veroniku Wendland og Amerdeo Sarma. Wendland er vísindasagnfræðingur sem hefur sérhæft sig í sögu Úkraínu og sögu öryggisþátta kjarnorkuvera. Sarma er rafmagnsverkfræðingur sem unnið hefur að rannsóknum á gervivísindum og hindurvitnum.

Þau Wendland og Sarma segja þá mynd sem dregin hafi verið upp af stjórnlausum geislavirkum vítislogum (þ. unbeherrschbaren radioaktiven Inferno) í kjölfar slyssis í Fushima ekki standast skoðun. Sannarlega hefði alvarlegt iðnaðarslys átt sér stað og afleiðingar þess miklar, efnahagslegar jafnt sem félagslegar. En af slysinu verði ekki dregin sú ályktun að kjarnorka sé í eðli sínu stjórnlaus (þ. unbeherrschbar).

Umfram allt yrði að hafa í huga að þær aðstæður sem leiddu til slyssins í Fukushima eigi ekki við í Þýskalandi — enda yrðu ekki fljóðbylgjur þar viðlíka þeim sem skullu á ströndum Japans umræddan dag (um slíkar flóðbylgjur er notað japanska orðið tsunami sem orðið hefur að alþjóðaorði). Samt sem áður hefðu þýsk kjarnorkuver verið hönnuð með það í huga að standast óvenjuleg áreynslu og var þá horft til hvers kyns náttúruhamfara sem gengið hafa yfir Norður-Evrópu síðastliðin tíu þúsund ár. Mikilvægustu hlutar þýskra kjarnorkuvera hefðu ekki getað farið undir vatn og þá hefðu varaaflskerfi komið í veg fyrir algjört rafmagnsleysi. Þau Wendland og Sarma tíunda í greininni ýmsar frekari tæknilegar útfærslur á öryggiskerfum þýskra kjarnorkuvera sem hefðu tryggt að rokgjörn geislavirk efni (þ. flüchtigen radioaktiven Stoffe) slyppu ekki út í andrúmsloftið við alvarleg slys.

Þau benda líka á að notkun jarðefnaeldsneytis sé mun líklegri til að valda stórfelldum dauðsföllum en kjarnorka og vísa til rannsókna sem sýna að með notkun kjarnorku hefur milljónum dauðsfalla verið afstýrt á undangengnum áratugum.

Þrátt fyrir að allt hafi þetta legið ljóst fyrir árið 2011 tók ríkisstjórn Angelu Merkel kanslara ákvörðun um að hætta alfarið starfrækslu kjarnorkuvera í kjölfar slyssins í Fukushima. Aðrar þjóðir — þar með taldir Japanir — bættu hins vegar öryggi kjarnorkuvera og eftirlit en Þjóðverjar lokuðu síðustu kjarnaofnum sínum í aprílmánuði 2023, þó svo að þeir ofnar væru líklega einhverjir þeir öruggustu í heimi.

Þjóðverjar súpa enn seyðið af ákvörðunum stjórnar Merkel í formi síhækkandi orkuverðs, aukinni losun gróðurhúsaloftegunda og þeim efnahagslega samdrætti sem eðlilega hefur fylgt orkuskorti.

Lærdómurinn

Þau Anna Veronika Wendland og Amerdeo Sarma segja tvennt mega læra af slysinu í Fukushima. Annars vegar að beislun kjarnorku sé ekki hættulaus en áhættan sé engu að síður tæknilega viðráðanleg. Hana verði að meta í samhengi við aðra valkosti — til að mynda í samanburði við varanlegar afleiðingar bruna jarðefnaeldsneytis og hafa þurfi vökult auga með öryggisatriðum kjarnorkuvera öllum stundum. Hins vegar verði skynsamleg orkustefna að byggja á staðreyndum gögnum — ekki tilfinningum.

Merkel lét undan þrýstingi kjarnorkuandstæðinga — hóps sem á sér rætur í hippahreyfingunni. Það fólk gat við svo búið farið á eftirlaun í fullnægju þess að draumur þeirra um kjarnorkulaust Þýskaland hefði ræst — nema hvað afkomendur þeirra þurfa að borga brúsann í formi verri lífskjara. En þetta er ekki einasta áfellisdómur yfir Merkel heldur líka flokki kristilegra demókrata sem stóð með formanni sínum. Félagsmálaráðherra í stjórninni á þeim tíma var Ursula von der Leyen. Hún studdi ákvörðun Merkel af heilum hug en gagnrýnir nú orkustefnu Þjóðverja þaðan sem sem hún situr á stóli forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Hræsni kynnu einhverjir kalla það.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Andri Þór Guðmundsson: Gríðarleg tækifæri í vöruþróun og samstarfi við birgja – Ísland kjörið fyrir nýjungar

Andri Þór Guðmundsson: Gríðarleg tækifæri í vöruþróun og samstarfi við birgja – Ísland kjörið fyrir nýjungar
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ingibjörg Isaksen þakkar fyrir sig eftir að hafa verið sett til hliðar

Ingibjörg Isaksen þakkar fyrir sig eftir að hafa verið sett til hliðar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Alma Möller: Fjölþættar lausnir þarf – bindum vonir við leiguleiðina

Alma Möller: Fjölþættar lausnir þarf – bindum vonir við leiguleiðina
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Móðurmál og mannamál

Jón Gnarr skrifar: Móðurmál og mannamál
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Hvar er best að búa?

Óttar Guðmundsson skrifar: Hvar er best að búa?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Braggablús

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Braggablús