fbpx
Mánudagur 16.mars 2026
Eyjan

Útför Davíðs Oddssonar

Eyjan
Laugardaginn 14. mars 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Útför Davíðs Oddssonar, ritstjóra Morgunblaðsins og fyrrverandi borgarstjóra, forsætisráðherra og seðlabankastjóra, var gerð frá Hallgrímskirkju í gær. Útförin var opinber á vegum íslenska ríkisins svo sem tíðkast þegar fyrrverandi forsetar og forsætisráðherrar eru kvaddir.

Séra Geir Waage, fyrrum prestur í Reykholti, jarðsöng. Geir er tengdafaðir Þorsteins, einkasonar Davíðs og Ástríðar Thorarensen. Karlakórinn Fóstbræður söng við athöfnina og Kristinn Sigmundsson söng einsöng.

Kirkjan var þéttsetin og viðstaddar voru m.a. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands og Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra. Einnig voru við útförina flestir ráðherrar ríkisstjórnarinnar, auk Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta.

Lögreglumenn báru kistu Davíðs út kirkjuganginn fram í anddyri. Í anddyrinu tóku við vinir Davíðs og samstarfsmenn, ásamt Ásgeiri Jónssyni, seðlabankastjóra, sem báru kistuna síðasta spölinn frá kirkjunni að líkbílnum.

Þeir sem báru kistu Davíðs síðasta spölinn úr kirkjunni að líkbílnum voru Haraldur Johannessen, ritstjóri Morgunblaðsins, Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, Þórarinn Eldjárn rithöfundur, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, Eiríkur Jónsson læknir, Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga, Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra, Ólafur Börkur Þorvaldsson hæstaréttardómari, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnarmaður í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins, og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.

Útförinni var sjónvarpað beint á RÚV.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Andri Þór Guðmundsson: Gríðarleg tækifæri í vöruþróun og samstarfi við birgja – Ísland kjörið fyrir nýjungar

Andri Þór Guðmundsson: Gríðarleg tækifæri í vöruþróun og samstarfi við birgja – Ísland kjörið fyrir nýjungar
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ingibjörg Isaksen þakkar fyrir sig eftir að hafa verið sett til hliðar

Ingibjörg Isaksen þakkar fyrir sig eftir að hafa verið sett til hliðar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Alma Möller: Fjölþættar lausnir þarf – bindum vonir við leiguleiðina

Alma Möller: Fjölþættar lausnir þarf – bindum vonir við leiguleiðina
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Móðurmál og mannamál

Jón Gnarr skrifar: Móðurmál og mannamál
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Hvar er best að búa?

Óttar Guðmundsson skrifar: Hvar er best að búa?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Braggablús

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Braggablús