fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Eyjan

Ingibjörg Isaksen þakkar fyrir sig eftir að hafa verið sett til hliðar

Eyjan
Miðvikudaginn 11. mars 2026 17:16

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ingibjörgu Isaksen er þakklæti efst í huga eftir að hún var sett af úr embætti þingflokksformanns Framsóknarflokksins. Nýkjörinn formaður flokksins, Lilja Alfreðsdóttir, lagði til á þingflokksfundi flokksins í dag að Stefán Vagn Stefánsson yrði nýr þingflokksformaður og var tillagan samþykkt.

Ingibjörg segir í Facebook-færslu að það hafi verið henni mikill heiður að leiða þingflokk Framsóknar á undanförnum árum. Starfið hafi verið í senn krefjandi og lærdómsríkt:

„Í dag lagði nýr formaður Framsóknar til breytingar á skipan þingflokks Framsóknar þar sem nýr þingflokksformaður mun taka við því hlutverki sem ég hef gegnt frá árinu 2021.

Það hefur verið mér mikill heiður að leiða þingflokk Framsóknar á þessum árum. Starfið hefur verið krefjandi en um leið afar lærdómsríkt og ég er þakklát fyrir það traust sem mér var sýnt þegar mér var falið þetta mikilvæga hlutverk af fyrrverandi formanni, með stuðningi þingflokksins.

Á þessum tíma hef ég öðlast dýrmæta reynslu af störfum Alþingis og átt gott samstarf við þingflokksformenn annarra flokka. Ég vil einnig þakka starfsfólki Alþingis sérstaklega fyrir afar gott samstarf. Þar starfar faglegt og öflugt fólk sem alltaf hefur verið gott að leita til og vinna með í daglegum störfum.

Það sem stendur þó sérstaklega upp úr er samstarfið við grasrót Framsóknar um allt land. Fyrir mér hefur alltaf skipt máli að tengslin milli þingflokksins og fólksins í flokknum séu sterk. Í þeim anda lögðum við til að halda reglulega fjarfundi með grasrótinni um störf þingsins, vettvang sem hefur mælst vel fyrir og skapað gott samtal um þingstörfin og þau mál sem þar eru til umfjöllunar.

Ég geng stolt frá borði, reynslunni ríkari og þakklát fyrir samstarfið við allt það góða fólk sem ég hef kynnst á þessari leið.

Nýrri stjórn þingflokksins óska ég góðs gengis og vona að þeim ásamt nýrri forystu flokksins takist vel að byggja upp fylgi við flokkinn.

Stjórnmál snúast að lokum um að halda áfram að vinna að þeim verkefnum sem skipta fólkið í landinu máli og það mun ég áfram gera.

Takk fyrir mig!“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Alma Möller: Fjölþættar lausnir þarf – bindum vonir við leiguleiðina

Alma Möller: Fjölþættar lausnir þarf – bindum vonir við leiguleiðina
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Jón Gnarr skrifar: Móðurmál og mannamál

Jón Gnarr skrifar: Móðurmál og mannamál
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Hvar er best að búa?

Óttar Guðmundsson skrifar: Hvar er best að búa?
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Braggablús

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Braggablús
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ofboð og geðshræring stjórnarandstöðunnar út af litlu máli

Orðið á götunni: Ofboð og geðshræring stjórnarandstöðunnar út af litlu máli
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Hunda- og kattahald í fjöleignarhúsum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Hunda- og kattahald í fjöleignarhúsum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Davíðs minnst á Alþingi – „Genginn einn litríkasti og áhrifamesti stjórnmálamaður síðari tíma“

Davíðs minnst á Alþingi – „Genginn einn litríkasti og áhrifamesti stjórnmálamaður síðari tíma“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Willum Þór Þórsson: Sakna stjórnmálanna en virði mitt núverandi hlutverk

Willum Þór Þórsson: Sakna stjórnmálanna en virði mitt núverandi hlutverk