fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Íslendingar í Svíþjóð segja Sigmund Davíð fara með staðlausa stafi – „Hvílíkur þvættingur!“

Eyjan
Föstudaginn 6. febrúar 2026 18:01

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í ræðupúlti Alþingis

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslendingar sem búsettir eru í Svíþjóð andmæla harðlega fullyrðingum Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formann Miðflokksins sem vill meina að landið sé orðið hættulegra en El Salvador. Sigmundur Davíð gerir þó ekki neina tilraun til að færa rök fyrir þessari fullyrðingu en alþjóðlegar tölur benda ekki til þess að þetta sé rétt.

Sigmundur Davíð skrifar á Facebook síðu sinni:

„Það er ótrúlegt hversu hratt hlutirnir geta breyst með réttum og röngum ákvörðunum. Fyrir ekki svo löngu var El Salvador eitt hættulegasta land í heimi og Svíþjóð var …Svíþjóð. Nú er Svíþjóð hættulegri en El Salvador. Framhaldsskólanemi: „Mamma, við ákváðum að spara og fara bara í útskriftarferð til Svíþjóðar. Við fundum gott tilboð á hóteli í Malmö.” Mamma: „Hafið þið hugleitt El Salvador?”“

Í athugasemdum andmæla Íslendingar sem búsettir eru í Svíþjóð:

„Hvílíkur þvættingur! Hef búið í Svíþjóð í 50 ár!“

„Hvaða áróður er þetta um Svíþjóð? Ég hef búið í Svíþjóð í 11 ár og fylgist mjög vel með fréttum. Glæpatíðni hefur minnkað. Er málið bara að kasta einhverju fram til að fá viðbrögð og til að sjást, því flokkurinn hefur engin alvöru baráttumál.“

Íslendingar sem búsettir eru hérlendis taka þó undir með Sigmundi Davíð og virðast því telja sig vita  betur en þeir sem búa í Svíþjóð.

Rök

Sigmundur Davíð færir í pistlinum engin rök fyrir þessari staðhæfingu sinni og vísar ekki í nein gögn eða tölur henni til stuðnings.

Árlega gerir alþjóðlega hugveitan Institute for Economics and Peace (IEP) úttekt á friði í heiminum og raðar öllum löndum heims í röð eftir því hversu friðsæl þau eru og gerir það með friðarstuðli sínum,  Global Index for Peace.

Til þess að komast að niðurstöðum sínum skoðar hugveitan meðal annars glæpatíðni og vígbúnaðarvæðingu hvers lands fyrir sig. Ísland er, samkvæmt friðarstuðli ársins 2025, eins og verið hefur frá því að stuðullinn hefur verið gefinn út í fyrsta sæti og er því samkvæmt  þessu friðsælasta land heims.

Svíþjóð er hins vegar í 35. sæti, neðst allra Norðurlandanna. Það sem dregur Svíþjóð helst niður þegar kemur að öryggi innanlands eru ofbeldisglæpir, aðgangur að smærri vopnum, ímynd landsins þegar kemur að glæpum og fjöldi lögreglumanna á hvern íbúa. Lægstu einkunnirnar fær Svíþjóð hins vegar fyrir sinn þátt í átökum og deilum við önnur ríki, útflutning á vopnum og aukna hervæðingu. Þar er væntanlega verið ekki síst að vísa í aukinn viðbúnað Svía vegna framgöngu Rússlands.

Neðar

El Salvador er hins vegar í 104. sæti á listanum. Tíðni morða er hærri þar en í Svíþjóð, fleiri lögreglumenn á hvern íbúa, hlutfall þeirra sem eru í fangelsi er hærra, aðgangur að smærri vopnum er meiri, tíðni skipulagðra átaka og mótmæla er hærri. Þegar kemur að eigindlegu umfangi ofbeldisglæpa fá löndin hins vegar sömu einkunn. El Salvador fær hins vegar einnig lægri einkunn þegar kemur að ofbeldi sem er af pólitískum rótum runnið og pólitískur óstöðugleiki er þar meiri en í Svíþjóð. Ímynd landsins þegar kemur að glæpum er hins vegar betri en hjá Svíum.

Tíðni dauðsfalla vegna skipulagðra átaka er hins vegar hærri í Svíþjóð sem fær einnig lægri einkunn þegar kemur að eyðslu opinberra fjármuna í vígbúnað.

Þegar kemur hins vegar að öryggi almennt fær Svíþjóð um einum heilum í hærri einkunn en El Salvador.

Niðurstöður þessarar skýrslur eru því þær að Svíþjóð sé mun öruggara land þegar á heildina er litið en El Salvador.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki