fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Erna Bjarnadóttir skrifar: Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur

Eyjan
Mánudaginn 16. febrúar 2026 15:56

Erna Bjarnadóttir. Mynd: Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í grein á Eyjunni 14. febrúar heldur Sigmundur Ernir Rúnarsson því fram að aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið geti skilað fjölmörgum sérlausnum fyrir íslenskan landbúnað og vísar til aðildarsamnings Finnlands sem dæmis. Í þeirri umfjöllun er þó mikilvægt að gera skýran greinarmun á tveimur ólíkum hugtökum: varanlegum undanþágum og sértækum útfærslum innan gildandi regluverks.

Munurinn er grundvallaratriði

Varanleg undanþága felur í sér að aðildarríki er undanþegið sameiginlegri stefnu sambandsins á tilteknu sviði. Reglur ESB gilda þá ekki um viðkomandi málaflokk í því ríki. Engin dæmi eru um slíkar varanlegar undanþágur í sameiginlegri landbúnaðarstefnu ESB (CAP).

Sértæk aðlögun eða sérlausn felur hins vegar í sér afmarkaða útfærslu innan ramma regluverksins sjálfs. Hún breytir ekki þeirri staðreynd að málaflokkurinn fellur undir sameiginlega stefnu og yfirstjórn sambandsins.

Sjá einnig:

Sigmundur Ernir skrifar: Svona semja bændur við ESB

Þegar Finnland samdi um svonefndan norðlægan stuðning við landbúnað sinn (á grundvelli greina 141 og 142 í aðildarsamningi landsins) fékk það ekki undanþágu frá sameiginlegri landbúnaðarstefnu ESB (CAP). Stuðningurinn var innbyggður í regluverkið og háður samþykki framkvæmdastjórnarinnar hverju sinni. Finnland fékk því ekki sjálfstæða landbúnaðarstefnu utan kerfisins, heldur heimildir til sértækrar útfærslu innan þess og á eigin fjárlögum.

Heimildir sem þessar eru hluti af regluverki sambandsins og lúta breytingum á því. Sameiginlega landbúnaðarstefnan er endurskoðuð reglulega og mótuð af stofnunum ESB og ráðinu, og þar með einnig þær útfærslur sem innan hennar eru veittar. Það er grundvallarmunur á varanlegri undanþágu og heimild sem er háð þróun og ákvörðunum innan kerfisins. Þetta eru lykilatriði í umræðunni.

Ef Ísland hyggst sækjast eftir varanlegum undanþágum frá sameiginlegri landbúnaðarstefnu þarf að útskýra með hvaða hætti slíkt rúmast innan nútíma stækkunarferlis ESB, þar sem regluverk sambandsins er skilgreint sem ófrávíkjanleg heild. Ef hins vegar aðeins er átt við sértækar útfærslur innan fyrirliggjandi regluverks, þá er ekki verið að ræða undanþágu frá kerfinu, heldur útfærslu innan þess.

Umræðan verður skýrari ef þessi hugtök eru aðgreind. Spurningin snýst ekki um samningatækni eða sjálfstraust við borðið, heldur um það hvort verið sé að tala um undanþágur frá sameiginlegri stefnu eða útfærslur innan hennar.

Höfundur er hagfræðingur og í stjórn Heimssýnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki