fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Hart sótt að fjármálaráðherra vegna verðbólgunnar – „Hvert er plan ríkisstjórnarinnar núna?“

Eyjan
Fimmtudaginn 29. janúar 2026 11:42

Mynd úr safni

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórnarandstaðan sótti hart að fjármálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag vegna verðbólgunnar, en Hagstofa Íslands tilkynnti í morgun að verðbólga hefði hækkað umfram svörtustu spár og mælist nú 5,2 prósent.

Sakaði stjórnarandstaðan ríkisstjórnina um að hafa valdið þessari hækkun með því að hækka gjöld um áramót. Samkvæmt Hagstofunni höfðu ýmsar breytingar á gjöldum áhrif á vísitölu neysluverðs milli mánaða. Olíugjald og vörugjöld á eldsneyti voru lögð niður, kolefnisgjaldið var hækkað og tekin voru upp kílómetragjöld fyrir öll ökutæki, vörugjöldum á ökutæki var breytt og rafbílastyrkurinn lækkaður.

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra telur að áhrif hins opinbera á neysluvísitöluna hafi verið í samræmi við væntingar en lýsti yfir vonbrigðum yfir því að einkaaðilar hafi séð sér leik á borði og hækkað gjöld umfram það sem nauðsynlegt var. Eins lýsti Daði því að það sé munur á einstakri mælingu á verðbólgu og svo undirliggjandi verðbólguvæntingum. Ríkisstjórnin vinni hörðum höndum að því að ná verðbólguvæntingum niður og telur Daði óráðlegt að ríkisstjórnin fari að reyna að handstýra einstaka verðbólgumælingum með því að niðurgreiða verðlag.

Slæmt þegar breytingar eru notaðar til að réttlæta hækkanir

Daði sagði í svari sínu til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins:

„Það hefur orðið töluverð umræða um það, og kemur raunar fram í máli hæstvirts þingmanns, að stjórnarandstaðan hafi varað við áhrifum breytinga á kílómetragjaldi og vörugjöldum af bifreiðum á vísitölu neysluverðs. Nú liggur mat Hagstofu Íslands fyrir og það kemur í ljós að áhrifin eru nákvæmlega í samræmi við það sem fjármálaráðuneytið spáði og að hækkunin sem er að verða núna á verðbólgu er vegna annarra þátta, þ.e. hækkunar á eldsneytisverðinu sjálfu og álagningar eldsneytis eða annarra slíkra þátta og álagningar á bifreiðar. Það er auðvitað slæmt þegar breytingar eru notaðar til að réttlæta hækkanir. Það er hins vegar þannig að það bendir til undirliggjandi verðbólguþrýstings og ég tek fyllilega undir það með hæstvirtum þingmanni að við þurfum að bregðast við því. Það verður ekki gert með niðurgreiðslu verðlags. Það er ekki leið til að draga úr verðbólgu heldur þvert á móti. Yfir þetta hef ég margoft farið í máli mínu hér í þinginu.“

Sigmundur sagðist ekki geta skilið svar Daða öðruvísi en að ríkisstjórnin ætli að halda áfram að lifa í sýndarveruleika og að hún muni ekki bregðast við verðbólgunni. Það sé augljóst af forsendum Hagstofunnar að aðgerðir ríkisstjórnarinnar séu að keyra upp verðbólguna og við þessu hafi stjórnarandstaðan varað fyrir áramót.

Daði tók fram að það megi glögglega sjá af greiningu Hagstofunnar. Hvað varðar kílómetragjald og rekstrarkostnað bifreiða sé einn fjórði af breytingunni vegna hins opinbera og varðandi vörugjöld sé það helmingur breytingarinnar.

Ekki hægt að niðurgreiða verðbólgu með hallarekstri

Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknar hæddist að ríkisstjórninni fyrir digurbarkalegar yfirlýsingar um plan. Það hafi allir stjórnarliðar rokið til fyrir áramót þegar verðbólgan var að lækka og slegið sig til riddara. Síðan hafi ríkisstjórnin hækkað gjöld og nú sitji þjóðin uppi með hærri verðbólgu. „Þess vegna spyr ég, kannski eins og barn: Hvað ætlar ríkisstjórnin og fjármálaráðherrann að gera?“ Sigurður Ingi lagði eins til að ríkisstjórnin lækkaði tímabundið virðisaukaskatt á matvælum til að koma til móts við dýrtíðina.

Daði segir að planið sé eins og áður, að ná niður verðbólguvæntingum. Stærsti drifkraftur verðbólgunnar undanfarið hafi verið húsnæðisliðurinn sem hafi samtímis reynst hafa forspárgildi um þróun verðbólgu og verðbólguvæntinga. Sá liður hafi nú lækkað verulega. Það sé mikilvægt að halda sig við þær áætlanir sem hafa verið gerðar. Sigurður Ingi lagði til að ríkisstjórnin lækkaði álagningu á matvörur til að koma til móts við þjóðina í þessari stöðu. Daði þvertók fyrir slíkar hugmyndir. Krónutölulækkanir eða skattalækkanir geti vissulega haft áhrif á verðbólgumælingar en geta haft öfug áhrif á verðbólguvæntingar. Það sé ekki hægt að borga sig út úr verðbólgu með hallarekstri ríkissjóðs.

Sleggjan orðin verðbólguvaldur

Ólafur Adolfsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins spurði: „Það blasir við að ríkisstjórnin sem ætlaði að nota stóru sleggjuna til að berja niður verðbólgu og vexti er sjálf orðin verðbólguvaldur. Planið er farið að kosta heimilin tugi milljarða. Getur hæstvirtur fjármála- og efnahagsráðherra, sprenglærður hagfræðingurinn, raunverulega sagt að planið sé að virka, og ef svo er, þá útskýrt það fyrir okkur hinum sem sjáum hreinlega ekki snilldina í planinu?“

Daði tók fram að hagstjórnarhlutverk ríkisins snúist að mestu um það að haga rekstrinum þannig að ýta ekki undir þenslu þegar þensla á sér stað heldur draga saman seglin. Að sama skapi eigi ríkið að nýta svigrúmið frekar í samdrætti. Þetta hlutverk sé vandmeðfarið þar sem það taki ríkið oft tíma að skipta um kúrs og reynslan hafi sýnt að það að beita ríkisfjármálum til að stýra verðlagi til skemmri tíma sé mjög erfitt.

„Fyrst og fremst eru það langtímaáhrifin sem skipta máli, þ.e. að leggja upp áætlanir t.d. um það að ríkissjóður sé rekinn með afgangi þegar vel árar og þá frekar með halla þegar illa árar. Það er það eina hlutverk sem ríkisfjármálin geta raunverulega sinnt. Það sem ég hef ítrekað verið að gagnrýna í málflutningi stjórnarandstöðunnar eða átt erfitt með að sætta mig við eru hugmyndir þeirra um niðurgreiðslu ríkisins á ýmsu verðlagi til þess að hafa áhrif á verðbólgumælinguna sem hefur þveröfug áhrif á verðbólguvæntingarnar. Mitt hlutverk, hingað til og hér eftir, verður að spila inn í verðbólguvæntingarnar; að ná jafnvægi í rekstri hins opinbera á næsta ári eins og þessi ríkisstjórn hefur einsett sér. Ég ætla að leyfa mér að taka undir áhyggjur stjórnarandstæðinga og þeirra sem hafa spurt mig hér í dag af verðlagsþróuninni. Hún er alls ekki góð. Viðbrögðin þurfa hins vegar að vera í samræmi við það sem ríkið getur gert og er skynsamlegt.“

Neitar að falsa verðbólgumælingar

Ólafur spurði þá hvort planið væri að heimilum landsins eigi að blæða endalaust vegna óábyrgra útgjaldaloforða ríkisstjórnarinnar. Plan ríkisstjórnarinnar sé augljóslega að hafa bein áhrif á bókhald heimilanna sem sé þvert á kosningaloforðin.

„Það stendur vart steinn yfir steini í þeim hagræðingaraðgerðum sem ríkisstjórn þessi hefur boðað. Dropi í hafið, nákvæmlega ekkert meira. Hvert er plan ríkisstjórnarinnar núna? Ætla þau að halda ótrauð áfram á núverandi braut skattahækkana á kostnað heimilanna í landinu eða stendur til að endurskoða einhverjar af þessum skattahækkunum og kannski hlusta á viðvörunarorð stjórnarandstöðunnar í framtíðinni?“

Daði tók fram að líklega sé rétt það sem hafi verið nefnt í þingsal að það sé ágætt að hann sé frekar í ríkisstjórninni en að kenna við háskólann þar sem honum sé greinilega að ganga illa að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

„Hlutverk ríkisins, hlutverk ríkisfjármálanna er að vinna á langtímavæntingunum, ekki skammtímamælingunum. Ég biðst afsökunar á því en mér finnst allar þær hugmyndir sem snúa að því að niðurgreiða einhvers konar neyslu til að falsa verðbólgumælingar lýsa grundvallarskilningsleysi á eðli fyrirbærisins verðbólgu, sem er ekki gott að sé útbreitt í þinginu vegna þess að hér þarf að taka ákvarðanir sem varða langtímahagsmuni þjóðarinnar.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki