fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Guðmundur Ingi brattur en smá þunglyndur eftir prófkjörið

Eyjan
Sunnudaginn 25. janúar 2026 14:45

Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, hafnaði í sjöunda sæti prófkjörs Samfylkingarinnar í Reykjavík og var til að mynda ofar en þaulreyndur sitjandi borgarfulltrúi, Dóru Björt Guðjónsdóttur, sem varð að gera sér 9. sætið að góðu. Í færslu á Facebook-síðu sinni segir Guðmundur Ingi að baki séu tvær mjög krefjandi vikur að baki og stutt sé í „smá örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“.

„Ég komst ekki í efstu sex sætin í flokksvalinu hjá Samfylkingunni í gær, heldur endaði í 7. sæti með yfir 1700 atkvæði. Þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar í heild sinni er það í raun mjög sterkur árangur og ég er stoltur af honum. Það er greinilega ekki nóg að halda skemmtilegasta partýið til að vinna kosningu, en það var allavega vel mætt og ógleymanlegt,“ skrifar Guðmundur Ingi.
Hann segist telja mikilvægast að með framboðinu hafi honum tekist að koma áherslunum sínum á kortið.  Velferðarmálum, stöðu jaðarsettra, láglaunafólks og mikilvægi þess að fólk með raunverulega lífsreynslu fái rödd þar sem ákvarðanir eru teknar.
„Sú rödd má ekki þagna og hún mun ekki þagna. Niðurstaðan er lýðræðisleg og ég sætti mig við hana. Ég óska öllum þeim sem hlutu öruggt sæti innilega til hamingju og veit að þar er mikið af hæfu og góðu fólki,“ skrifar frambjóðandinn.
Þá segist hann ætla að vinna áfram með Samfylkingunni og heitir því að þetta verði ekki endalok hans í pólitík.

 

Sjá færslu Guðmundar Inga:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki