
Óhætt er að fullyrða að viðtal Silfursins á RÚV við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands og ráðherra til fjölda ára, hafi vakið athygli. Þar fór Ólafur Ragnar yfir stöðu heimsmálanna og deildi þeirri skoðun sinni hvað væri farsælast fyrir Ísland að gera í þeirri breyttu stöðu sem upp er komin. Hvatti hann til stillingar meðal íslenskra forystumanna, varast vanhugsaðar yfirlýsingar og gæta þess að Ísland dragist ekki inn í deilur stórvelda. Þá ætti að rækta sambandið við Grænlendinga sem og stjórnvöld í Washington.
Sitt sýnist hverjum um þessar ráðleggingar forsetans og var það meðal annars tilefni til fjörlegrar umræðu í sal Alþingis í dag. Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, settist þó við lyklaborðið og í færslu á samfélagsmiðlum lét hann þá skoðun greinilega í ljós að hann væri ekkert yfir sig hrifinn af ráðleggingum Ólafs Ragnars:
„Það er talsvert framboð af öldnum höfðingjum sem horfa vestur um haf með aðdáun. Þeir eru sem betur fer allir fyrrverandi hitt og þetta,“ skrifaði Sigmar í stuttri færslu og uppskar talsverð viðbrögð.
Einn þeirra sem kunni ekki að meta færsluna var einn af þekktustu öldnu höfðingjum þjóðarinnar, Össur Skarphéðinsson. Utanríkisráðherrann fyrrverandi lét þingmanninn heyra það í hvassri færslu sem gneistaði af.
„Kanntu ekki mannasiði, mannfjandi?! Ég og þú kunnum að vera annarrar skoðunar en Ólafur Ragnar Grímsson á Evrópusambandinu en skoðanir hans á því, Bandaríkjunum og eftir atvikum öðrum stórveldum, eru fullrar virðingar verðar, og þú eða þið í Viðreisn vinnið enga slagi, allra síst um Evrópu, með því að tala niður til fólks. Björn Ingi las orð hans úr Silfrinu um aðferðafræði hárrétt, og margir fleiri eru sömu skoðunar, bara svo þú vitir það. Fyrir hönd allra „aldraðra höfðingja“ og „fyrrverandi“ segi ég bara: Betur að Viðreisn hefði einhverja slíka i sínum röðum. Eitt er að klúðra niður fylginu en mér sýnist að þið séuð á sömu leið með Evrópumálin. Sparaðu þér svo aldursfordóma næst þegar þú sest við skjáinn, sem þú út af fyrir sig mættir alveg sleppa,“ skrifaði Össur.