Jóna Þórey Pétursdóttir varaþingmaður Samfylkingarinnar steig í fótspor móður sinnar í gær þegar hún flutti jómfrúarræðu sína á Alþingi.
Ræðan var um frumvarp til breytinga á lögum um fæðinga- og foreldraorlof, en þar fjallaði Jóna líka um kvenfrelsi og kvenréttindabaráttu.
Jóna er þrítug og er dóttir Sigrúnar Jónsdóttur, fyrrum varaþingmanns Kvennalistans, og það vill svo skemmtilega til að fyrir 35 árum flutti Sigrún, þá líka þrítug, sína jómfrúarræðu sem fjallaði einmitt um fæðingarorlof.
Jóna greinir frá þessari skemmtilegu tilviljun á Facebook:
„Í dag flutti ég jómfrúarræðu mína á Alþingi. Hún var um fæðingar- og foreldraorlof, en líka um jafnrétti, kvenfrelsi og kvenréttindabaráttu. Það var viðeigandi að geta flutt jómfrúarræðu um þetta mál, því mamma, Sigrún Jónsdóttir, flutti einnig sína jómfrúarræðu á Alþingi – jafn gömul og ég – fyrir 35 árum síðan um sama efni. Ég nýtti því tækifærið og endurtók hennar orð en þau hafa staðist tímans tönn“
Með færslunni birtir hún myndbrot úr ræðunni. Tilvitnunin í móður hennar var eftirfarandi:
„Það er skylda samfélagsins að gera öllum foreldrum fjárhagslega kleift að eignast börn og veita þeim viðunandi umönnun, ekki síst á viðkvæmu skeiði í upphafi æviferils.[…] Sumir segja kannski að nóg sé gert […] Konur hafi hér áður fyrr farið að vinna frá allt að hálfsmánaðargömlum börnum og þær hafi haft börnin á brjósti og hvað eina. Ekki ætla ég að draga úr því að margar mæður hafa nánast gert kraftaverk fyrir börnin sín þegar þjóðfélagið bauð ekki upp á annað. En ég trúi því að þessar mæður og foreldrar kjósi annan og betri aðbúnað fyrir afkomendur sína en þeim sjálfum var boðið upp á.“
Þar með hafa þessi orð verið flutt af tveimur kynslóðum á Alþingi og í bæði skiptin var flytjandi þrítugur varaþingmaður að flytja jómfrúarræðu um fæðingarorlof.