Fyrsta byggingin sem risin er á Orkureitnum, svokallað A hús, hefur hlotið Svansvottun 4, sem er nýr staðall Svansvottunar sem gerir talsvert meiri kröfur en eldri staðall 3. Byggingin er sú fyrsta á Íslandi og öllum Norðurlöndunum til að hljóta Svansvottun samkvæmt staðli 4.
Svansvottun 4 gerir meðal annars auknar kröfur til dagsbirtugæða, rakaöryggis, heilnæmara efnisvals og betri innivistar fyrir íbúa. Nýja Svansvottunin var veitt byggingarfélaginu SAFÍR, sem er eigandi og umsjónaraðili Orkureitsins, við formlega athöfn á dögunum. Aðrar byggingar á Orkureitnum sem nú eru í byggingu eru í sama ferli og stefnt að Svansvottun þeirra samkvæmt staðli 4 sömuleiðis.
Sérstök dagsbirtuvottun er í nýju Svansvottuninni sem byggingin hefur nú fengið en við hönnun íbúða var lögð mikil áhersla á gæði dagsbirtu. Stærð glugga, staðsetning þeirra og val á gleri, ásamt skipulagi rýma, var útfært með það að markmiði að tryggja gott flæði náttúrulegrar birtu um helstu vistarými. Slík hönnun dregur úr þörf fyrir lýsingu yfir daginn og styður við lífsgæði og vellíðan íbúa.
Einnig var lögð áhersla á rakaöryggi byggingarinnar á hönnunar- og framkvæmdartíma. Sérstök rakaöryggisáætlun felur í sér kröfur sem eru settar fram til að lágmarka skemmdir af völdum raka í byggingu. Svansvottun 4 tekur einnig til heilnæmara efnisvals án skaðlegra efna sem geta valdið ertingu og ofnæmi. Þannig er skapað heilnæmara og öruggara umhverfi fyrir fólk.
„Viðmið Svansins eru hert reglulega til að samræmast þeirri tækni og þróun sem byggist upp á markaðinum hvað varðar umhverfismál. Í þessari nýjustu útgáfu nýbyggingarviðmiðanna voru kröfurnar hertar töluvert ásamt því að nýjar kröfur bættust við. Það er því virkilega mikill sigur að vera fyrst á Norðurlöndunum til að hljóta Svansleyfi samkvæmt þessum nýju viðmiðum,“ segir Bergþóra Kvaran, sérfræðingur hjá Umhverfis- og Orkustofnun.
Bergþóra segir Svansvottaðar byggingar þurfi að uppfylla kröfur um dagsbirtuútreikninga til að tryggja betri innivist. ,,Á Orkureitnum þurfti að gera töluverðar breytingar á hönnun til að uppfylla þær kröfur sem sýnir enn og aftur mikilvægi þess að framkvæmdaraðilar hugi að þessum málum eins og Safír hefur gert. Það eru gríðarleg tækifæri til að gera betur í stórum verkefnum sem þessum og Safír hefur sýnt frumkvæði með því að ákveða að Svansvotta og byggja á BREEAM vottuðum reit þar sem tekið er á þeim fjölmörgu atriðum sem skipta máli þegar kemur að umhverfismálum. Í þessu verkefni hefur verið hugað að innivist, losun gróðurhúsalofttegunda, hringrásarhagkerfinu, líffræðilegum fjölbreytileika og mörgu öðru,“ segir hún.