fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Björg Magnúsdóttir: Engin tilviljun að Vigdís varð forseti

Eyjan
Mánudaginn 1. desember 2025 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var engin tilviljun að Vigdís Finnbogadóttir var kosin forseti 1980. Það var mjög gaman að kynna sér feril hennar, segir Björg Magnúsdóttir, sem var ein þeirra sem skrifaði handritið að þáttunum um Vigdísi. Björg sér einnig um að gefa fólk saman í hjónaband á vegum Siðmenntar og hefur komið nálægt mörgu spennandi þótt ekki sé hún gömul að árum. Hún segir nær ómögulegt að lifa af skrifum og skapandi störfum á Íslandi og því þurfi pottarnir að vera margir í notkun hverju sinni, Björg er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Björg Magnúsdóttir - 5
play-sharp-fill

Björg Magnúsdóttir - 5

Þú ert aldrei með bara eitthvað eitt í pottinum. Þú ert með nokkra potta í gangi. Þú hefur skrifað bækur og þú hefur skrifað handrit. Segðu okkur aðeins frá því.

„Já. Já, einmitt. Mér hefur alltaf þótt rosalega gaman að skrifa og ég gaf út tvær skvísubækur á árinu hvað, 2012, 13, eitthvað svoleiðis. Ekki þessi týpa og Þessi týpa. Svo ætlaði ég alltaf að láta þriðju bókina heita Týpa en guggnaði á því af því að ég var komin í eitthvað annað. En.

Það er nú enn þá tími.

„Já, þú meinar.“

Já, já, þetta er ekki búið.

„Veistu, það er svo gaman þegar það er gaman og þegar maður finnur eitthvað sem er gaman þá auðvitað bara langar mann að gera það. Og staðan er nú bara því miður þannig að það er erfitt að lifa á því að skrifa eingöngu fagurbókmenntir, sjónvarpsefni, kvikmyndir á Íslandi í dag. Það er nánast ekki hægt. Og núna til dæmis er ég í verkefni með henni Yrsu Sigurðardóttur sem er bara unaður af því að hún er svo geggjuð. Hún er sko miklu geggjaðri en ég var búin að átta mig á. Mér fannst hún geggjuð áður en. Allavega.“

Yrsa er æðisleg. Við erum samstúdentar og það kemur manni ekkert á óvart að hún skuli vera þar sem hún er.

„Já, nákvæmlega. En til dæmis settöppið sem hún er að vinna með er auðvitað bara vera verkfræðingur á verkfræðistofu helminginn af árinu og svo skrifar hún helminginn af árinu. Þannig að þetta er rosalega mikið þannig. Dagur Hjartarson var í Kiljunni um daginn og hann er kennari í MS. Þú þarft að vera með dálítið marga potta ef þú ætlar einhvern veginn að sinna þessum skrifheimum. Þannig að, og þetta svona fer ágætlega saman með eins og ég hef verið að gera með störfum í fjölmiðlum og svo er ég að gifta hjá Siðmennt.“

Já, segðu okkur aðeins frá því.

„Ég fór á námskeið hjá Siðmennt fyrir svona, hvað eigum við að segja, svona sjö árum að fá sem sagt réttindi til að gifta. Þú færð réttindi frá innanríkisráðuneytinu. Þú mátt gifta, mátt gefa nafn og þú mátt ferma borgaralega. Og þetta er húmanismi. Þetta finnst mér svo falleg stefna. Þetta er bara svona manngildisstefna. Þetta er bara svona að muna eftir öllu þessu góða sem maðurinn býr yfir og getur gert og hvernig viljum við vera. Og það er gaman líka að fá tækifæri til að tala um það og hugsa um það. Þannig að ég er í Siðmennt og ég fíla þetta.“

Þetta var svona útúrdúr, en þú hefur komið að handritagerð fyrir þætti sem allir þekkja, sem að hafa slegið í gegn, Ráðherrann.

„Já. Það var mjög áhugavert verkefni. Það var fyrsti þátturinn sem ég átti þátt í að skrifa. Það var þannig að á þeim tíma, þetta er svona 2012, þá er Borgen, manstu ekki eftir eftir Borgen, danska Birgitte Nyborg, danski forsætisráðherrann. Ég varð algjörlega heilluð af þeim þætti og ég hugsaði svona, heyrðu, mikið væri nú gaman að vinna með íslenska pólitík. Þarna er ég auðvitað einhver ungur, metnaðarfullur stjórnmálafræðingur: Skrifum um íslensku pólitíkina, því þar er nú af nógu að taka, eins og við þekkjum. Þannig að þar byrjar í rauninni þetta verkefni. Svo erum við þarna þrjú inni í höfundaherberginu og Saga Film framleiðir. Handritið var lengi í pípunum. Við vorum þarna öll að gera okkar fyrsta handrit, en við sem sagt skrifum þarna um forsætisráðherra sem er að glíma við geðhvarfasýki. Hann heillar þjóðina algjörlega á sitt band. Ólafur Darri fer með þetta hlutverk. Og leynir því á sama tíma fyrir þjóðinni sem kýs hann að hann sé með þessa veiki, þennan sjúkdóm. Þannig að þetta verður svona ákveðin togstreita og fjölmiðlarnir blandast þarna aðeins í. Þetta eru þekkt minni, en þetta var ofsalega skemmtilegt.“

Já, þetta voru alveg rosalega skemmtilegir þættir og vel gerðir.

„Mhm. Bara sammála. Þetta var ótrúlega skemmtilegt og það er rosalega gaman að vinna með eitthvað svona íslenskt, íslenska pólitík, íslenska sögu, íslensk minni. Við vorum að, án þess að taka fyrir kvótakerfið, baráttu milli höfuðborgar og landsbyggðar og auðvitað andleg veikindi. Máttu hafa einhverjar skuggahliðar eða máttu vera að kljást við eitthvað persónulegt ef þú ætlar að stíga fram sem pólitíkus? Eða þarftu einmitt að vera með eitthvað slétt og fellt yfirborð? Er pláss fyrir manneskjuna þarna?“

Hafa ekki allir einhverja skuggahlið? Þetta er bara spurning um það hvort hún er sýnileg.

„Jú, jú, það eru margar beinagrindur víða. Síðasta verkefnið sem ég tók þátt í var að skrifa um Vigdísi Finnbogadóttur og það var nú líka um pólitík að einhverju marki, en auðvitað fyrst og fremst um hana sem karakter og hvað veldur því … og þarna komum við kannski að einhverjum leiðtogafræðum … hvað veldur því og hvaða vörður eru það í hennar lífi sem gera það að verkum að hún endar sem fyrsti kvenforseti, lýðræðislega kjörni, í heiminum? Það sem kom mér svo skemmtilega á óvart með hana Vigdísi, þegar maður fer að skoða söguna akkúrat í baksýnisspeglinum, þá er eitt og annað. sem gefur eitthvað til kynna, þú veist, og bara mjög ung þegar hún fer einhvern veginn að taka, hún tók ótrúlega þétt og fast utan um Bóa bróður sinn og bara eiginlega var með hann algjörlega alltaf með sér og svona mikil ábyrgðarkennd gagnvart honum auðvitað, en hann síðan kveður snemma. Það var gaman að fá að skoða hennar líf í retróspektífinu. Og þegar maður er búinn að skoða söguna hennar, þá áttar maður sig á því, já, þetta var nú klárlega ekki tilviljun.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Hide picture