fbpx
Mánudagur 16.júní 2025
Eyjan

Orðið á götunni: Miðflokkurinn berst gegn sjálfsögðum réttindum Íslendinga með málþófinu gegn Bókun 35

Eyjan
Mánudaginn 16. júní 2025 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Undanfarin dægur hafa landsmenn mátt horfa á stjórnarandstöðuna stunda málþóf á Alþingi og hefur Miðflokkurinn gengið fram fyrir skjöldu og sýnt í verki erindisleysu sína í stjórnmálum á átakanlegan hátt. Sólarhringum saman kom hver Miðflokksmaðurinn á fætur öðrum í pontu Alþingis ýmist til að stama og ræskja sig og endurtaka í sífellu „hérna“ og „þarna“ eða til að fjalla af takmarkaðri getu um stjórnskipan á þjóðveldisöld.

Inn á milli málþófsræða Miðflokksins undir liðnum Bókun 35 hafa svo spunnist langar umræður um fundarstjórn forseta. Þar hafa gert sig gildandi Miðflokksmenn og Sjálfstæðismenn og eru sárlega móðgaðir fyrir að þurfa að mæta í vinnuna um helgar.

Orðið á götunni er að íslenskir þingmenn sem beita öllum ráðum til að hindra framgang mála réttkjörins meirihluta Alþingis séu ekki of góðir til að mæta þá til vinnu alla daga vikunnar og vinna fram á nótt ef svo ber undir. Fólk sem hefur hátt í tvær milljónir á mánuði í laun fyrir þægilega innivinnu getur vart kvartað undan slíku þótt margir þingmenn Miðflokks og Sjálfstæðisflokks hafi barmað sér ógurlega yfir því í gær og virðist halda að engir á Íslandi þurfi að vinna á sunnudögum.

Orðið á götunni er að þingmenn Miðflokks og Sjálfstæðisflokks hefðu gott af því að fara út á meðal fólks, jafnvel á sunnudegi, og þá kæmust þeir að því að strætó gengur á sunnudögum, veitingahús eru opin, hægt er að panta leigubíl og svo hefur ekki frést af því að Leifsstöð sé lokuð á sunnudögum. Flugliðar sinna sínum störfum á sunnudögum og það gera líka íslenskir sjómenn, bændur og verslunarmenn. Með sanni má því segja að stór hluti landsmanna fer til vinnu á sunnudögum þótt þingmenn stjórnarandstöðunnar viti ekki af því og góli eins og stungnir grísir ef ætlast er til að þeir vinni sjálfir á sunnudegi.

Orðið á götunni er að málþóf Miðflokksins vegna Bókunar 35 verði flokknum ekki til framdráttar. Sú innleiðing hennar sem utanríkisráðherrar bæði Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar hafa lagt til við þingið er beinlínis til að tryggja Íslendingum sama rétt samkvæmt Evrópureglum og aðrir Íbúar EES-svæðisins njóta. Það er grunnur virkni EES-samningsins að reglur samkvæmt honum séu samræmdar á öllu svæðinu.

Misbrestur á þessu hérlendis kom skýrt fram er túlkun íslenskra laga varð til þess að kona sem hafði starfað hluta af meðgöngu í öðru EES-landi mátti sæta skerðingu á launum í fæðingarorlofi vegna þess að íslensk lög viðurkenndu ekki að taka ætti tillit til launa nema þeirra sem greidd hefðu verið hér á landi þrátt fyrir að innleidd tilskipun kvæði skýrt á um annað. Bókun 35 er mikið réttindamál fyrir íslenskan almenning þar sem neytendavernd hér á landi er nær öll tilkomin vegna innleiðingar á Evrópureglum vegna aðildarinnar að EES.

Orðið á götunni er að almenningur kunni þeim sem berjast dag og nótt gegn bættum réttindum Íslendinga litlar þakkir og að ríkisstjórnarmeirihlutinn mætti setja skýrar fram með dæmum um hvað rétt innleiðing Bókunar 35 snýst. Því má bæta við að innleiðingin sem nú er til umræðu í þinginu er einföld lagasetning og ef einhvern tíma síðar myndast meirihluti á þingi sem vill svipta landsmenn réttindum samkvæmt EES er hægt að breyta þessum lögum.

Orðið á götunni er að þá fyrst yrði tilefni til að beita málþófi ef ríkisstjórn setti fram frumvarp til að svipta Íslendinga réttindum sem aðrir á EES-svæðinu njóta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Obba og Hanna sýna á sér aðra hlið – Ekki gott að lenda á eftir Þorgerði Katrínu í ræðustól af einfaldri ástæðu

Obba og Hanna sýna á sér aðra hlið – Ekki gott að lenda á eftir Þorgerði Katrínu í ræðustól af einfaldri ástæðu
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Andlitin sem enginn man

Nína Richter skrifar: Andlitin sem enginn man
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Hvað mun sagan segja?

Thomas Möller skrifar: Hvað mun sagan segja?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Svandís þarf ekki að leita langt yfir skammt að samstarfsaðila

Orðið á götunni: Svandís þarf ekki að leita langt yfir skammt að samstarfsaðila
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hallgrímur Helgason: Auðvörn allra tíma – Samtök fjármagnseigenda í sjávarútvegi beita leppum sínum

Hallgrímur Helgason: Auðvörn allra tíma – Samtök fjármagnseigenda í sjávarútvegi beita leppum sínum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Þetta er það sem stórútgerðin fær í afslátt hjá þjóð sinni

Sigmundur Ernir skrifar: Þetta er það sem stórútgerðin fær í afslátt hjá þjóð sinni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verkalýðsforstjórar kasta grjóti úr glerhúsi

Orðið á götunni: Verkalýðsforstjórar kasta grjóti úr glerhúsi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Reiptog lýðræðis og hagsmuna

Þorsteinn Pálsson skrifar: Reiptog lýðræðis og hagsmuna