fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Eyjan

Þykir miður að kaupin á TM hafi orðið umdeild

Eyjan
Föstudaginn 12. apríl 2024 18:48

Helga Björk Eiríksdóttir, formaður Bankaráðs Landsbankans

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fráfarandi Bankaráð Landsbanka Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem áréttað er að Bankasýsla ríkisins hafi verið upplýst um áhuga bankans á að kaupa tryggingafélagið TM sem og þátttöku bankans í söluferli fyrirtækisins. Bankasýslan hafi ekki sett fram neinar athugasemdir né óskað eftir frekari upplýsingum eða gögnum fyrr en eftir tilboðið hafi verið samþykkt.

Greint var frá því fyrr í dag að bankaráðinu, eins og það leggur sig, yrði skipt út á næsta aðalfundi Landsbankans.

Fráfarandi meðlimir harma að kaupin hafi orðið eins umdeild og raun ber vitni en telur sig hafa uppfyllt upplýsingaskyldu sína en það er þó ekki sýn sem Bankasýsla ríkisins deilir.

Sjá einnig: Skipta út bankaráði Landsbankans í heild sinni eftir TM-hneykslið

Yfirlýsingin í heild sinni:

Líkt og fram kemur í greinargerð bankaráðs Landsbankans til Bankasýslu ríkisins frá 22. mars sl. þá átti bankaráð, frá miðju ári 2023, frumkvæði að því að upplýsa Bankasýsluna um áhuga bankans á að kaupa TM. Þann 20. desember 2023, sama dag og bankinn gerði óskuldbindandi tilboð í félagið, var Bankasýslan upplýst í símtali um að bankinn væri þátttakandi í söluferli TM. Bankasýslan setti aldrei fram athugasemdir eða óskaði eftir frekari upplýsingum eða gögnum fyrr en eftir að tilboð bankans hafði verið samþykkt.

Bankaráð starfar í samræmi við eigandastefnu ríkisins og samning bankans við Bankasýsluna frá 2010. Líkt og á við um stjórnir annarra hlutafélaga, þá er bankaráð Landsbankans sjálfstætt í störfum sínum og ber að gæta að hagsmunum félagsins í hvívetna. Bankaráð hefur unnið að fullum heilindum að kaupum á TM og er fullvisst um að kaupin munu auka virði bankans til lengri tíma, stuðla að aukinni arðsemi og betri þjónustu. Þetta mat bankaráðs byggir á ítarlegu mati og greiningu, m.a. með aðkomu utanaðkomandi ráðgjafa.

Bankaráð vísar m.a. til þess að í eigandastefnunni segir: „Ríkið stefnir ekki að því að eiga meiri hluta í fjármálafyrirtækjum á almennum markaði til lengri tíma. Því er mikilvægt að umsýsla þessara eignarhluta sé fagleg, traust og á markaðsforsendum, m.a. til að hámarka söluandvirði og arðgreiðslur fyrir skattgreiðendur, enda er um verðmætar samfélagseignir að ræða.“ Eftir þessu hefur bankaráð starfað.

Eins og þegar hefur verið staðfest af Bankasýslunni var ákvörðun um að leggja fram tilboð í TM á forræði bankaráðs. Hafi Bankasýslan talið að þrátt fyrir það þyrfti að afla samþykkis hluthafafundar fyrir kaupunum, þá hafði hún mörg tækifæri til að koma því áliti á framfæri.

Bankaráð uppfyllti skyldur sínar til upplýsingagjafar til Bankasýslunnar en finnst miður að stofnunin líti svo á að þær upplýsingar hafi ekki verið veittar með nægjanlega formlegum hætti. Fyrri samskipti við Bankasýsluna gáfu ekki tilefni til að ætla að samskiptin hefðu átt að fara fram með öðrum hætti.

Bankaráði þykir miður að ákvörðun um kaup á TM, sem var tekin með hagsmuni Landsbankans, hluthafa og viðskiptavina að leiðarljósi, hafi orðið jafn umdeild og raun ber vitni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun