fbpx
Þriðjudagur 16.september 2025
Eyjan

Segir Kára senda sneið með því að skapa hundruð starfa á meðan frjálshyggjuforkólfar hafi ekkert lagt til einkaframtaksins

Eyjan
Mánudaginn 17. júlí 2023 12:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kári Stefánsson snupraði Svandísi Svavarsdóttur, matvælaráðherra, og sýndi fram á að hún er ekki að vinna vinnuna sína. Sama gildir um þingheim allan sem á að setja okkur nothæf lög á sviði sjávarútvegsmála og annarra málaflokka.

Þetta skrifar Ólafur Arnarson í Dagfarapisli á Hringbraut. Hann víkur að ávarpi Kára á mótmælafundi strandveiðisjómanna við Alþingishúsið á laugardag og rifjar upp ræðu Kára á sjómannadeginum í Grindavík fyrir skemmstu.

Ólafur segir vanda Svandísar aukast jafnt og þétt, hún virðist hafa tekið ákvörðun um að stöðva hvalveiðar í einhverju frekjukasti og sýnt hafi verið fram á að trúlega hafi hún brotið lög, starfsreglur og jafnvel stjórnarskrána. Klárlega hafi hún brotið meðalhófsregluna með því að stöðva veiðar einungis sólarhring áður en þær áttu að hefjast.

Hann vitnar í að Kári sagðist í ræðu sinni á Austurvelli vera gamall sósíalisti sem aldrei hefði horfið frá þeirri hugsjón og veltir fyrir sér hvort Svandís eða Katrín Jakobsdóttir muni nokkuð lengur eftir sósíalisma þegar þær virðist hugsa um það eitt að halda sjálfum sér við völd á ráðherrakjörum.

í niðurlagi Dagfarapistilsins segir að gamli sósíalistinn hafi einnig sent ýmsum jafnöldrum sínum og samferðamönnum vænar sneiðar með því að hafa skapað mörg hundruð störf með frumkvöðulsstarfi sínu hjá Íslenskri erfðagreiningu á meðan helstu talsmenn frjálshyggjunnar hafi einungis verið styrkþegar og þiggjendur en aldrei lagt einkaframtakinu neitt til sjálfir.

Dagfara í heild má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Framkvæmdastjóri N1: Látum breytingar koma hratt fram í verðinu – bæði til lækkunar og hækkunar

Framkvæmdastjóri N1: Látum breytingar koma hratt fram í verðinu – bæði til lækkunar og hækkunar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jón vill breyta þessu við hátíðleg tækifæri – „Þurfum við ekki að taka höndum saman“

Jón vill breyta þessu við hátíðleg tækifæri – „Þurfum við ekki að taka höndum saman“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Forseti hefur lög að mæla – fólk vill ekki endurtekna gíslatöku á Alþingi

Orðið á götunni: Forseti hefur lög að mæla – fólk vill ekki endurtekna gíslatöku á Alþingi
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Vilhjálmur bálreiður út í ríkisstjórnina

Vilhjálmur bálreiður út í ríkisstjórnina
Eyjan
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Vanstillt þjóðfélagsumræða

Björn Jón skrifar: Vanstillt þjóðfélagsumræða
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Forpokaðir fordómagrísir haldnir forréttindablindu ráðast gegn minnihlutahóp

Orðið á götunni: Forpokaðir fordómagrísir haldnir forréttindablindu ráðast gegn minnihlutahóp
Eyjan
Fyrir 1 viku

Breytingar í framkvæmdastjórn Póstsins – Eymar og Benedikt ráðnir

Breytingar í framkvæmdastjórn Póstsins – Eymar og Benedikt ráðnir
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Blásið til sóknar fyrir alla – ekki bara Range Rover, Benz og Porsche liðið heldur alla

Svarthöfði skrifar: Blásið til sóknar fyrir alla – ekki bara Range Rover, Benz og Porsche liðið heldur alla