fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Saka Íslandshótel um yfirhylmingu á verkfallsbrotum – Veifuðu bréfi frá Halldóri Benjamín sér til varnar og ýttu verkfallsvörðum út með valdi

Eyjan
Miðvikudaginn 8. febrúar 2023 16:04

Af vettvangi við Fosshótel Reykjavík. Mynd/Efling

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslandshóteli tilkynntu fyrir skömmu að verkfallsvörðum Eflingar hafi verið meinaður aðgangur að hótelum keðjunnar vegna hótanna. Efling hefur nú svarað fyrir þær sakir og segja að verkfallsverðir hafi orðið vitni að verkfallsbrotum sem hafi verið framin af ásetningi.

Sjá einnig: Saka Eflingu um hótanir og meina þeim aðgang að hótelunum

Í tilkynningu segir:

„Verkfallsverðir Eflingar urðu í dag vitni að ásetningsbrotum Íslandshótela gagnvart verkfallsaðgerðum félagsins. Var verkfallsvörðum meinaður aðgangur að rýmum og fyrirskipað án raka að aðeins mættu tveir verkfallsverðir fara inn á hvert hótel í einu. Tilgangur fyrirtækisins með þessu var augljóslega að hlyma yfir verkfallsbrotum. Fulltrúar Íslandshótela veifuðu bréfi undirrituðu af Halldóri Benjamín Þorbergssyni framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins sér til varnar.“

Aðeins hafi tveimur verkfallsvörðum verið hleypt inn á Grand Hótel eftir hádegið í dag og var þeim svo fylgt um húsnæðið af öryggisverði. Þar hafi verkfallsverðir orðið vitni að verkfallsbrotum en um það segir í tilkynningu:

„Verkfallsverðir Eflingar sinntu verkfallsvörslu í dag eftir hádegið á Grand Hótel, en einungis tveimur var hleypt inn. Var þeim fylgt um húsnæðið af öryggisverði í hverju fótmáli. Verkfallsverðir komu á 6. hæð hótelsins að starfsfólki sem hafði verið fyrirskipað af stjórnendum að ganga í störf Eflingarfélaga í verkfalli, sem er verkfallsbrot. Óskuðu verkfallsverðir eftir að ræða við starfsfólkið og biðja það að taka ekki þátt í verkfallsbrotum. Ýtti þá öryggisvörður Íslandshótela verkfallsvörðum með handafli af vettvangi.

Eflingarfélagar komu saman um hálf þrjú leytið við Fosshótel Reykjavík, þar sem sama framganga hafði verið viðhöfð gegn verkfallsvörðum. Var framkomu fyrirtækisins mótmælt og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar ávarpaði hópinn. Hvatti hún jafnframt gesti hótelsins til að standa með Eflingarfélögum og líða ekki verkfallsbrot. Komu þar fljótlega aðvífandi lögmenn Samtaka atvinnulífsins og var dyrum hótelsins læst. Stóð nærvera Eflingarfélaga við hótelið yfir í nokkra stund og voru sóttar kaffiveitingar.

Sólveig Anna setti á staðnum fram þá kröfu að verkfallsverðir fengju að fara inn á hótel Íslandshótela fimm saman í hóp. Eftir nokkra stund var orðið við kröfunni og fóru Eflingarfélagar þá af vettvangi að frátöldum fimm verkfallsvörðum sem sinntu í kjölfarið verkfallsvörslu eins og eðlilegt er.

Félagið hafnar með öllu ósannindum sem Íslandshótel hafa sent til fjölmiðla í dag um að verkfallsverðir Eflingar hafi haft uppi ótilgreindar „hótanir“. Slíkt er hreinræktaður uppspuni og dæmigert fyrir villandi upplýsingar fyrirtækisins til starfsfólks síns og almennings á síðustu viku.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki