fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Auglýsing borgarinnar um „verkefnastjóra framtíðarinnar“ vekur athygli – „Það er verið að hafa okkur að fíflum“

Eyjan
Miðvikudaginn 8. febrúar 2023 11:11

Mynd af vef Reykjavíkurborgar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reykjavíkurborg auglýsir nú eftir „verkefnastjórum framtíðarinnar“ til að „taka þátt í mótum nýrrar verkefnastofu“.

Hefur auglýsingin vakið þó nokkra athygli, bæði fyrir það að auglýsingin virðist óljós að efni til og fyrir það að borgin sé að auglýsa nýja stöðu þrátt fyrir að eins konar ráðningarbann ríki þar um þessar mundir.

Auglýsingin er svohljóðandi:

„Umhverfis- og skipulagssvið leitar að verkefnastjóra til að taka þátt´i mótun nýrrar verkefnastofu. Á verkefnastofu er unnið eftir hugmyndafræði verkefnastjórnunar, verkefnum er fylgt eftir frá upphafi til enda þvert á verkþætti og ábyrgðarsvið fagsskrifstofa. Verkefnin krefjast mikillar samvinnu teymismeðlima og allra hagsmunaaðila sem koma að verkefnum verkefnastofu. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í faglegu starfsumhverfi þar sem áhersla er á teymisvinnu og góða þjónustu. Næsti yfirmaður er skrifstofustjóri verkefnastofu.“

Svo kemur lýsing á helstu verkefnum og ábyrgð og gerð er grein fyrir menntunar- og hæfnikröfum.

Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi, gagnrýndi í samtali við Vísi að starfið sé auglýst þegar eins konar ráðningarbann ríki í borginni. Bannið felist í því að ekki eigi að ráða í stöður sem losna nema brýn nauðsyn sé. Starfsmannafjölgun hjá borginni sé verulegt áhyggjuefni, sérstaklega í ljósi hallareksturs sem sé gífurlegur. Sjálfstæðisflokkurinn hafi bent á að fækka þurfi starfsfólki borgarinnar sem ekki sinni grunnþjónustu heldur frekar störf í yfirbyggingunni.

„Þetta er ekki fólkið sem er að sinna þessari mikilvægu grunnþjónustu. Á sama tíma vantar okkur fólk í leikskóla, okkur vantar fólk á frístundaheimilin og til að manna þessi mikilvægu störf. Þarna sjáum við þessa skrýtnu áherslu hjá þessum meirihluta.“

Ofangreint starf sé mjög sérkennilegt starfsheiti og erfitt að sjá hvernig ráðning í þessa stöðu samræmist ráðningareglum sem borgin hafi kynnt fyrir áramót. Eins sé mjög óljóst hvað starfið feli í sér.

„Fólk hefur einhvern veginn algjörlega misst yfirsýn,“ sagði Hildur og benti á að hún hafi beðið um yfirlit starfslýsingar allra starfsmanna í miðlægri stjórnsýslu og fengið svar sem var 600 blaðsíður að lengd.

Á Facebook segir Hildur að „það segi sennilega alla söguna“.

Auglýsingin vakti einnig athygli hrafnanna Hugins og Munins, nafnlauss skoðanapistils Viðskiptablaðsins. En þar segir:

„Oft var þörf en nú er nauðsyn. Og nauðsynin er brýn á umhverfis- og skipulagssviði borgarinnar. Hún leitar nú að verkefnastjórum – takið eftir ekki verkefnastjóra heldur verkefnastjórum.

Það eru aðkallandi verkefni sem þessir stjórar eiga að stýra: Sjálfri framtíðinni.“

Auglýsingin hefur líka vakið athygli á Twitter.

Eva Kristinsdóttir, skrifstofustjóri verkefnastofu, sagði í samtali við Vísi að starfið felist í því að Reykjavíkurborg sé með risavaxin verkefni út um alla borg og oft til margra ára. Til standi að nýta faglega verkefnastjórnun, sem sé faggrein, og vinna samkvæmt þeirri hugmyndafræði – eða að fylgja verkefnum eftir frá upphafi til enda.

Um sé að ræða verkefni á borð við skipulagsverkefni og framkvæmdaverkefni, Borgarlínu, Sæbrautarstokk og uppbyggingu nýrra hverfa. Þegar talað sé um verkefni sé verið að ræða um eitthvað sem hafi upphaf og enda, ólíkt rekstri til dæmis sem hafi ekki enda.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“