„Til að fjármagna varnirnar var lagður nýr skattur á allar fasteignir í landinu. Þann skatt þurfa einstaklingar, fyrirtæki og sveitarfélög að greiða. Þótt allir séu hlynntir því að varnirnar séu reistar verður að gera athugasemd við að fyrsta hugdetta sé alltaf að hækka skatta. Sér í lagi í þessu tilviki því það eru til fjármunir í varasjóði ríkisins,“ segir Sigmar í aðsendri grein á leiðarasíðu Morgunblaðsins í dag.
Sigmar bendir á að þessum sjóði sé beinlínis markað það hlutverk að mæta meiri háttar ófyrirséðum og óhjákvæmilegum útgjöldum, svo sem vegna náttúruhamfara.
„Skattgreiðendur hafa því þegar greitt af sínum fasteignum til að mæta ófyrirséðum útgjöldum vegna náttúruhamfara. Og það eru tugir milljarða í sjóðnum.“
Sigmar segir það einnig varhugavert að leggja á skatt, sem að öllum líkindum verður til frambúðar, án þess að rýna það nægjanlega vel og fá fram öll sjónarmið í umsögnum.
„Það var ekki gert vegna þess að afgreiða þurfti lögin með hraði. Þess þá heldur að nýta varasjóðinn og gefa sér tíma til að fara betur yfir fjármögnunina. Það hefði ekki tafið gerð varnargarðanna sem þingmenn voru sammála um að reisa.“
Sigmar segir að því miður sé það þannig að sporin hræða og bendir hann á býsna sláandi dæmi.
„Ríkið innheimti af skattgreiðendum í fyrra rúma 3,8 milljarða í ofanflóðasjóð, sem nýttur er í varnir gegn ofanflóðum. Sjóðurinn fékk hins vegar bara 2,7 milljarða í sinn hlut til að sinna sínum vörnum. Ríkið notaði rúman milljarð af gjaldinu í annað. Á síðustu árum hefur ríkið tekið 15 milljarða af þessu gjaldi og sett í önnur verkefni en að verja byggðir fyrir snjó og aurflóðum. Sagan segir okkur því skýrt að ríkið hikar ekki við að skattleggja fólk og fyrirtæki í því skyni að verja byggðir fyrir náttúruhamförum, en nýtir svo stóran hluta peningsins í annað. Það er ekki sanngjarnt gagnvart fólkinu sem á að verja.“