fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Björn segir Arndísi fara með rangt mál – „Óþarft er að ala á tortryggni á þennan hátt“

Eyjan
Þriðjudaginn 10. janúar 2023 13:00

Björn Bjarnason og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir - Myndin er samsett

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Arndís Anna fer með rangt mál þegar hún segir að látið sé „eins og engin vinna hafi verið lögð í nýju stjórnarskrána á sínum tíma“. Telur hún þetta „hreina vanvirðingu“ við þjóðina.“

Svona hefst grein sem Björn Bjarnason, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins til margra ára, skrifar og birtir á heimasíðu sinni í dag. Björn virðist ekki sáttur með ummæli sem Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, lét falla í frétt sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Arndís er ekki hrifin af áformum Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra en Katrín vill fá sérfræðinga til að vinna greinargerðir um þá kafla stjórnarskrár Íslands er fjalla um Alþingi, dómstóla og mannréttindi.

„Það er al­veg stór­merki­legt hve marg­ir eru bún­ir að stroka yfir alla þessa stjórn­ar­skrár­vinnu sem fór fram eft­ir hrunið. Þau láta eins og hún hafi ekki farið fram, sem er hrein van­v­irðing við þjóðina og alla þá vinnu sem var unn­in þá,“ segir Arndís meðal annars í samtali sínu við Morgunblaðið.

Í grein sinni útskýrir Björn um hvað málið snýst:

„Í sáttmála annars ráðuneytis Katrínar Jakobsdóttur frá 28. nóvember 2021 segir að sett verði af stað vinna sérfræðinga um ákvæði stjórnarskrár um alþingi, kosningar og kjördæmaskipan, dómstóla og eftir atvikum önnur ákvæði, svo sem mannréttindaákvæði. Framhald vinnu við stjórnarskrárbreytingar verði metið í framhaldi af samráði við fræðasamfélagið.

Í samræmi við þetta hefur forsætisráðherra falið fjórum sérfræðingum að taka saman greinargerðir um þá kafla stjórnarskrárinnar sem fjalla um alþingi, dómstóla og mannréttindi. Þá verður haldið áfram vinnu við endurskoðun kosningalaga.

Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu 6. janúar 2023 segir að þessi sérfræðivinnan sé í „samræmi við það hvernig ákveðið var í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarflokkanna að halda áfram þeirri heildstæðu yfirferð yfir stjórnarskrána sem hófst á síðasta kjörtímabili. Þá voru meðal annars tekin fyrir ákvæði um auðlindir og umhverfismál og kafli um handhafa framkvæmdarvalds“.

Gert er ráð fyrir því að sérfræðingarnir skili greinargerðum sínum til forsætisráðuneytisins eigi síðar en 1. september 2023.“

Björn segir að allt sé þetta bæði skýrt og augljóst en auk þess sé þetta í samræmi við niðurstöður þingkosninganna sem fóru fram í september árið 2021. „Flokkarnir sem töluðu fyrir þær mest um „nýju stjórnarskrána“ Samfylking og Píratar fengu ekki það brautargengi sem þeir vildu. Í höndum þessara flokka breyttist „nýja stjórnarskráin“ í gjörning með veggjakroti og öðru,“ segir hann.

„Nú hefur það svo gerst að forysta nýju Samfylkingarinnar hefur ekki áhuga á „nýju stjórnarskránni“ og hefur sagt skilið við samfylgdina með Pírötum í stjórnarskrármálinu.“

Þá minnist Björn á ritgerð sem Kristrún Heimisdótir lögfræðingur skrifaði en ritgerðin kom út í bókinni Landfesti lýðræðis: Breytingarregla stjórnarskrárinnar árið 2021. Björn segir að í henni hafi Kristrún lýst því hve erfitt það er að henda reiður á það sem fellur undir „nýju stjórnarskrána“.

„Helstu talsmenn hennar eru ekki alltaf samstiga um hvert sé efni hennar. Ritgerðin er einstök úttekt á þeim ruglingi öllum,“ segir hann.

Að lokum gagnrýnir Björn Arndísi fyrir ummælin og segir þau ala á tortryggni. „Óþarft er að ala á tortryggni á þennan hátt. Forsætisráðherra gerir þetta á grundvelli stjórnarsáttmálans í umboði kjósenda eftir að þeir ákváðu að Píratar ættu ekki erindi í ríkisstjórn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“