fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Play hefur selt tugþúsundir sæta

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 1. júlí 2021 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flugfélagið Play hefur nú þegar selt tugþúsundir sæta að sögn Birgis Jónssonar, forstjóra. Búið er að selja í annað hvert flugsæti í júlí og þéttbókað er í flug félagsins í ágúst og í haust.

Morgunblaðið hefur þetta eftir honum í dag. Áætlunarflug Play til Berlínar hefst í dag og fjórir áfangastaðir bætast við á næstu þremur vikum.

Icelandair verður með 30 áfangastaði í júlí, 20 í Evrópu og 10 í Norður-Ameríku. Í ágúst bætast þrír áfangastaðir við í Evrópu og einn í Norður-Ameríku. Þannig verður félagið fljótlega með 34 áfangastaði. Þetta hefur Morgunblaðið eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair Group.

Hann sagði að verið sé að bregðast við aukinni eftirspurn með þessu og líti haustið vel út. „Bókunarflæðið hefur verið nokkuð sterkt, sérstaklega Bandaríkjamegin, síðustu vikur. Við erum að sjá ágætis teikn inn á haustið og veturinn. Við gerum ráð fyrir að vera með metnaðarfulla flugáætlun í haust og vetur. Staðan er nokkuð góð og bókunarflæðið endurspeglar það,“ er haft eftir honum.

Hann sagði að góð eftirspurn frá Bandaríkjunum skipti þarna miklu máli en einnig sé eftirspurnin að aukast frá meginlandi Evrópu og Skandinavíu en Bretar sú nú hikandi. „Bretar opnuðu á ferðalög til Portúgal og því fylgdi mikið framboð flugsæta. Síðan var lokað fyrir ferðir þangað aftur og tók það svolítið sjálfstraustið af ferðaþjónustunni í Bretlandi; ferðaviljinn og bókunarviljinn minnkaði aftur,“ sagði Bogi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki