fbpx
Þriðjudagur 09.desember 2025
Eyjan

Ásgeir seðlabankastjóri með eftirtektarvert ráð fyrir Íslendinga – „Ég mæli með að fólk festi vexti“

Máni Snær Þorláksson
Fimmtudaginn 1. júlí 2021 09:35

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri Íslands, mætti í viðtal í hlaðvarpsþáttinn til Snorra Björns en þar ræddu þeir undir lokin um stýtivexti og fasteignamarkaðinn. 

„Kom það þér á óvart, það sem gerðist við fasteignamarkaðinn eftir að stýrivextirnir fóru svona lágt?“ spyr Snorri viðmælanda sinn og Ásgeir svarar játandi. „Vegna þess að þegar við lækkum stýrivexti þá leit fasteignamarkaðurinn ekki vel út. Það sem við sáum þá var að íbúðir seldust ekki, byggingaverktakar voru lentir í vandræðum með að selja, voru lentir í lausafjárvandræðum,“ segir Ásgeir.

Ásgeir segir þá að bankarnir hafi haft áhyggjur þegar Covid-19 faraldurinn var í gangi. „Bankarnir sögðu okkur að þeir hefðu áhyggjur af þessu og óttuðust það að byggingageirinn væri að fara á sama stað og ferðaþjónustan, þyrftu að fá frystingar og bankarnir þyrftu þá að taka fyrirtæki í gjörgæslu, það voru horfurnar í Covid. Svo snérist þetta við og það kom okkur á óvart, já. Bjóst ekki við að bankarnir færu svona ákaft út í þetta, eins og þeir gerðu,“ segir Ásgeir.

„Þú vissir þá strax að um leið og þú myndir hækka stýrivextina þá myndi fólk finna fyrir því út af öllum lánunum sem það er að taka fyrir fasteignunum,“ segir Snorri þá.

Ásgeir lýsir þá áhyggjum sínum og kemur með ráð til landsmanna. Það er ansi óvenjulegt að svo áhrifamikill einstaklingur eins og seðlabankastjóri komi með ráð af þessum toga fyrir landsmenn. „Það sem ég hef áhyggjur af er það að sko, þú getur fest vexti og þú getur tekið breytilega vexti, þá velta vextirnir á Seðlabankanum. Þú getur fest vexti og það hefur komið mér á óvart af hverju það eru ekki fleiri sem hafa fest vexti,“ segir hann og ákveður svo að vera enn skýrari í máli sínu.

„Mögulega ætti ég að vera skýrari með það að ég mæli með að fólk festi vexti. Það er samt svo erfitt fyrir mig en ef ég ætti að gefa fólki ráð þá væri það að festa vexti. Ég veit ekki nákvæmlega hvað er að fara að gerast í kerfinu, það er svo margt sem getur gerst. En ég náttúrulega veit að við hljótum að fara að hækka vextina því vextirnir voru voðalega lágir út af þessum faraldri.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Stjórnarandstaðan gagnrýndi fjarveru Guðmundar Inga – Var svo upplýst um að ráðherra liggur á sjúkrahúsi

Stjórnarandstaðan gagnrýndi fjarveru Guðmundar Inga – Var svo upplýst um að ráðherra liggur á sjúkrahúsi
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Biðskylda

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Biðskylda
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Reiði skólameistarinn
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Björg Magnúsdóttir: Er spennt fyrir leiðtogakjöri hjá Viðreisn – liggur undir feldi

Björg Magnúsdóttir: Er spennt fyrir leiðtogakjöri hjá Viðreisn – liggur undir feldi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fylgi Miðflokks eykst enn – Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar

Fylgi Miðflokks eykst enn – Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurður Hólmar skrifar: Glansmyndin Ísland

Sigurður Hólmar skrifar: Glansmyndin Ísland
Eyjan
Fyrir 1 viku

Björg Magnúsdóttir: Er það til góðs að rífast við einhverja hagfræðinga um millistykki og bílastæði?

Björg Magnúsdóttir: Er það til góðs að rífast við einhverja hagfræðinga um millistykki og bílastæði?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Jólaljós fyrir femínista og Miðflokksfrændur

Nína Richter skrifar: Jólaljós fyrir femínista og Miðflokksfrændur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Björg Magnúsdóttir: Pólitík ekki fyrir þá sem vilja bara þægilega innivinnu

Björg Magnúsdóttir: Pólitík ekki fyrir þá sem vilja bara þægilega innivinnu