fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Veltir fyrir sér mögulegum ríkisstjórnum – Samstarf Katrínar og Sigmundar líklegast

Jón Þór Stefánsson
Fimmtudaginn 18. mars 2021 18:00

Samsett mynd - Katrín Jakobsdóttir og Sigmundur Davíð

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, veltir fyrir sér mögulegum ríkisstjórnum eftir komandi Alþingiskosningar í pistli sem birtist í Fréttablaðinu í morgun. Þorsteinn segir að nú sé að skýrast hvaða stjórnarmyndunarkostir séu í boði eða útilokaðir. Að mati hans væru líklegasta ríkisstjórnin skipuð af flokkum Katrínar Jakobsdóttur, Bjarna Benediktssonar, Sigurðar Inga Jóhannessonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.

Hann minnist á að Samfylking virðist útiloka samstarf við Sjálfstæðisflokkinn og Miðflokkinn og þá grunar hann að Sjálfstæðisflokkurinn hafi útilokað samstarf við Viðreisn.

„Samfylkingin hefur útilokað samstarf við Sjálfstæðisflokk og Miðflokk. Einnig er sennilegt að Sjálfstæðisflokkurinn hafi hugsað brottvikningu fulltrúa Viðreisnar úr stjórn Íslandspósts sem óbein skilaboð til kjósenda sinna um að samstarf við Viðreisn sé ekki á dagskrá.“

Snúin staða Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænir ný Framsókn

Að mati Þorsteins liggja stjórnarmyndunarkostir Sjálfstæðisflokksins í jaðarflokkum lengst til vinstri og hægri. Og þá segir hann að eini miðjuflokkurinn sem hann virðist geta starfað með sé Framsókn.

Þorsteinn segir að útilokun Sjálfstæðisflokksins á öðrum flokkum og útilokun annara flokka á honum setji flokkinn í þrönga stöðu.

„Þetta þýðir að Sjálfstæðisflokkurinn horfir fyrst og fremst til samstarfs við jaðarflokkana lengst til vinstri og hægri. Af flokkunum, sem liggja næst miðjunni, lítur hann bara til Framsóknar.

Í krafti stærðar sinnar á Sjálfstæðisflokkurinn mesta möguleika á að tryggja sér setu við ríkisstjórnarborðið. En útilokun hans sjálfs á öðrum og útilokun annarra á honum gerir það að verkum að hann hefur ekki fyrr verið í jafn þröngri málefnalegri stöðu.

Möguleikar Sjálfstæðisflokksins til þess að hafa áhrif verða því fyrst og fremst fólgnir í því að koma í veg fyrir breytingar. Það er reynslan af núverandi samstarfi jaðarflokkanna þar sem miðjan hefur haft hverfandi áhrif.“

Þorsteinn lýtur svo á að Vinstri grænir séu nú í sömu lykilstöðu og Framsókn hafi verið í langan tíma. Þau ráði sem sagt hvort ríkisstjórnir séu myndaðar til vinstri eða hægri.

„Í raun breyttist VG úr róttækum vinstri flokki í praktískan þegar þau tóku að sér eftir hrun að framkvæma umfangsmestu íhaldsaðgerðir í ríkisfjármálum á lýðveldistímanum. Í núverandi samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn hafa engin málefni verið hugmyndafræðilega erfið, en kyrrstaðan oftast verið lausnin, nema í skipulagi heilbrigðismála.

Í ljósi þröngrar málefnastöðu Sjálfstæðisflokksins er líklegast að VG muni hafa mest um það að segja hvers kyns ríkisstjórn verður mynduð. Í byrjun kallaði grasrótin í VG á skýra stefnu en nú skipta völdin hana meira máli. Þetta auðveldar forystu flokksins að taka við gamla hlutverki Framsóknar.“

Katrín og Sigmundur saman í ríkisstjórn

Þorsteinn heldur að Vinstri Grænir hafi lokað á samstarf við Samfylkinguna og Viðreisn. Hann telur líklegast að næsta ríkisstjórn samanstandi af Vinstri grænum, Sjálfstæðisflokknum, Framsókn og Miðflokknum. Sem er sem sagt núverandi ríkisstjórn með Miðflokknum að auki.

VG hefur hafnað málamiðlunarhugmyndum um að setja í stjórnarskrá ákvæði um að nýtingarréttur að auðlindum í þjóðareign skuli vera tímabundinn. Með því virðist VG vera að útiloka samstarf við Samfylkingu og Viðreisn.

Verði þetta sérhagsmunaákvæði samþykkt kallar það á endurstaðfestingu á nýju þingi eftir kosningar. Missi stjórnarflokkarnir meirihlutann er aðeins ein leið fyrir VG til að tryggja því framgang. Hún er að bjóða Miðflokknum um borð.

Fyrir þær sakir er líklegast að það verði næsta ríkisstjórn.

VG þrengir stöðu sína með því að hafna málamiðlun um auðlindaákvæðið. En væntanlega getur VG tryggt sér áframhaldandi ríkisstjórnarforystu með þessu móti.“

Möguleg stjórn miðjunnar

Einnig telur Þorsteinn líklegt að miðjuflokkar gætu myndað ríkisstjórn. Framsókn, Samfylking og Viðreisn gætu myndað stjórn, þó að staða þeirra sé snúin.

„Þeir flokkar sem liggja næst miðjunni eru Framsókn, Samfylking og Viðreisn. Þessir flokkar hafa verið að styrkjast í skoðanakönnunum. Haldi fram sem horfir verður miðjan stærsta mengið á Alþingi.

Flokkarnir þrír hafa ekki útilokað hver annan. En miðjan mun ekki ná áhrifum við stjórnarmyndun í samræmi við stærð nema að minnsta kosti tveir þessara flokka standi saman. Fari einn þeirra með jaðarflokkunum verða miðjuáhrifin hverfandi.

Næðu þeir allir þrír saman gæti miðjan aftur á móti orðið ráðandi. Það yrði vissulega málefnalega snúið. En trúlega gæti það opnað möguleika fyrir Framsókn til að blanda sér á ný í baráttuna um forsætið.

Á dögunum bættist Pírötum liðsauki með þingmanni, sem gekk vinstra megin úr VG. Fyrir vikið geta Píratar ekki, eins og VG, átt aðild að ríkisstjórn, sem styður aðild að Atlantshafsbandalaginu. Þeir hafa með þessu endanlega lokað á aðild að raunhæfum stjórnarmyndunarkostum.“

Tveir möguleikar í stöðunni

Þegar upp er staðið lítur Þorsteinn svo á að tveir möguleikar séu í stöðunni. Annars vegar sé það miðjustjórn, en hins vegar sé það stjórn jaðarflokka til hægri og vinstri.

„Tölfræðin sýnir marga ólíka kosti til stjórnarmyndunar. Pólitísk skoðun bendir hins vegar til að megin línurnar séu bara tvær.

Annars vegar er stjórn jaðarflokkanna yst til hægri og vinstri. Hins vegar er stjórn þar sem tveir eða þrír flokkar úr miðjumenginu yrðu hryggjarstykkið.

Líkurnar á hreinni stjórn til hægri eða vinstri eru mun fjarlægari.

Jaðarflokkastjórn virðist líklegust eins og sakir standa. Miðjuflokkarnir þurfa að styrkja stöðu sína enn frekar fram að kosningum eigi að snúa líkunum við.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“