fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Eyjan

„Þegar ég áttaði mig á því um hvað þetta snýst runnu á mig tvær grímur, það fór um mig hrollur“

Jón Þór Stefánsson
Laugardaginn 20. febrúar 2021 18:30

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. Mynd Hanna/DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, skrifaði bréf sem birtist í Vísi í dag og beindist að félagsmönnum VR. Líkt og hefur verið áberandi í fjölmiðlum styttist nú í formannskjör í stéttarfélaginu og hlaut Ragnar eitt mótframboð. Frambjóðandinn er Helga Guð­rún Jón­as­dóttir sem hefur verið for­maður Lands­sam­bands sjálf­stæð­iskvenna og tekið sæti sem vara­þing­maður flokks­ins.

Ragnar segist hafa skoðað stefnumál Helgu með opnum hug og tekið mótframboðinu fagnandi. Þegar hann pældi í stefnumálum hennar fór hann að velta fyrir sér um hvað það snerist: Hann segist svo hafa fundið svarið við því, og þá hafi farið um hann hrollur.

„Ég hef lagt mig fram við að skilja stefnu og áherslur mótframbjóðanda míns til formanns VR. Ég hef gert það með opnum huga og tekið því fagnandi að fá mótframboð með svo ólíkum áherslum sem raunin er, félagsmönnum VR til góðs. Því ólíkari sem valkosturinn er því betra.

En um hvað snýst þetta allt saman?

Ég velti því fyrst fyrir mér um hvað mótframboðið er að tala þegar það vill aftengja formannsembættið flokkspólitík. Sérstaklega þegar viðkomandi er mjög flokkspólitískur til hægri.

En þegar ég áttaði mig á því um hvað þetta snýst runnu á mig tvær grímur, það fór um mig hrollur. Ég hafði lesið allar þessar áherslur áður. Áherslur og málflutning sem núverandi og sérstaklega fyrrum framkvæmdastjóri SA hafa haldið á lofti af miklum móð.“

Hann segir að skilji hann málið rétt sé markmið Helgu að gefa sérhagsmunaöflunum og Samtökum atvinnulífsins frið frá verkalýðshreyfingunni.

„Að formaður stærsta stéttarfélags landsins á ekki að skipta sér af neinu sem snýr að pólitík eða neinu því sem snýr að stórum hagsmunamálum almennings sem löggjafinn fer með. Hann á þá bara að fara á þing! Og að verkalýðshreyfingin skipti sér alls ekki af lífeyrissjóðunum eða fjárfestingum þeirra.

Ef ég skil þetta rétt eiga sérhagsmunaöflin og Samtök atvinnulífsins að fá algjöran frið við að vaða á skítugum skónum yfir lífeyrissjóðina okkar og löggjafann, án afskipta eða aðhalds verkalýðshreyfingarinnar.

Í síðustu kjarasamningum náðum við 80 milljarða aðgerðarpakka frá Ríkisstjórninni. Síðustu tvö uppgjörsár Lífeyrissjóðs Verslunarmanna eru þau bestu í sögu sjóðsins, svo góð að sjóðurinn mun þurfa að hækka lífeyrisgreiðslur á þessu ári.

Þetta eru staðreyndir sem fáir tala um.“

Ragnar nefnir að helsta helsta orsök bankahrunsins hafi verið ítök sérhagsmuna í stjórnmálum sem vildu lítið regluverk og þá hafi mótstaðan verið lítil sem enginn. Hann segir að það hafi ekki endað vel.

Þá fjallar hann um spillingu, sem hann segir að fyrirfinnist ekki bara í svikum, prettum og ránum, heldur einnig þegar einhver hafi vitneskju um eitthvað slíkt og geri ekkert í því. Að mati Ragnars hættulegasta spillingin í íslensku samfélagi þöggunin í kringum sjálf brotin. Hann bendir á að hluti þess sé að sannfæra fólk um takmörk verkalýðshreyfingarnar.

„Helsta orsök bankahrunsins voru mikil ítök sérhagsmuna í pólitíkinni til að afregluvæða og einkavæða á meðan mótstaða var lítil sem engin. Við vitum öll hvernig það endaði.

Spilling er ekki bara að stela, svíkja og pretta, eða hygla og moka undir aðra sem verða þér hliðhollir seinna. Spilling er líka að hafa vitneskju um það og gera ekkert í málunum. Spilling er að grafa undan aðhaldi, eftirliti og upplýstri umræðu.

Versta tegund spillingar í okkar samfélagi eru ekki brotin heldur þöggunin og meðvitað aðgerðarleysi gagnvart þeim. Hluti af þessu er að telja fólki trú um hvað verkalýðshreyfingin má gera og hvað ekki.“

Þá fjallar Ragnar um viðbrögð stjórnvalda við faraldrinum. Hann minnist á að atvinnulífið hafi fengið talsvert stærri upphæðir en heimilin í landinu. Ragnar segir að þá hafi VR komið málinu fyrir nefnd, sem hefði aldrei gengið án umræddra „pólitískra afskipta“ hans.

„Sérhagsmunaöflin hafa löngum barið sér á brjóst fyrir að geta skrifað sínar eigin leikreglur, koma sínu fram án mótlætis í 90% tilfella. Aftur á móti hefur verkalýðshreyfingin reynt að valdefla sig og koma sínum sjónarmiðum fram.

Til að rökstyðja það enn frekar má nefna að Atvinnulífið hefur fengið yfir 300 milljarða í aðgerðarpökkum stjórnvalda vegna Covid-19 á meðan heimilin og fólkið hafa fengið brot af því. Við gerum ekki lítið úr stuðningi við stærstu fyrirtækin en þegar VR þrýsti á frekari aðgerðir fyrir okkar félagsmenn og fólkið í landinu var málinu komið fyrir í nefnd.

Nefnd sem hefði líklega aldrei farið af stað nema vegna „pólitískra afskipta“ formanns VR.“

Í lok pistils síns segir Ragnar að Helga vilji losa félagið við baráttu fyrir fyrir bættu siðferði og aðhaldi. Og þá heldur hann því fram að það verði skálað í kampavíni hjá Samtökum Atvinnulífsins verði stefna hennar að veruleika.

„Mótframbjóðandi minn til formanns VR vill aftengja embættið og félagið hvers kyns baráttu fyrir bættu siðferði og aðhaldi innan lífeyrissjóðanna og síst af öllu skipta sér af því hvað gerist á háborði stjórnmálanna þar sem endanleg ákvörðun um skiptingu lífskjara fer fram.

Það verður kátt í SA höllinni ef þessi stefna verður að veruleika.

Og því spyr ég félagsmenn VR. Eigum við að skála í kampavíni með Samtökum atvinnulífsins og uppfylla þeirra blautustu drauma um afskiptaleysi hreyfingarinnar og Salek? Eða skálum við fyrir áframhaldandi sterkri verkalýðsforystu sem mun veita nauðsynlegt aðhald og berjast fyrir bættum kjörum okkar allra og komandi kynslóða, á öllum vígstöðvum?

Með atkvæði þínu mótum við framtíðina. Þitt er valið kæri VR félagi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins