fbpx
Miðvikudagur 17.apríl 2024
Eyjan

Yfirlýsing Landverndar vegna stjórnarsáttmála – Fagna áformum nýrrar ríkisstjórnar

Eyjan
Mánudaginn 29. nóvember 2021 12:11

Auður Önnu Magnúsdóttir, Framkvæmdastjóri Landverndar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Yfirlýsing stjórnar Landverndar vegna Sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf

Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs“

 

Stjórn Landverndar fagnar áformum nýrrar ríkisstjórnar um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 55% árið 2020 miðað við 2005 og markmiði um  kolefnishlutleysi og full orkuskipti eigi síðar en árið 2040. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landvernd.

Í tilkynningunni segir að eitt sé  að setja sér framsækið markmið, annað að tilgreina nauðsynlegar aðgerðir til að ná því markmiði. Stjórnarsáttmálinn sé bæði fáorður og óljós um leiðir að þessu markmiði. Fáein ár eru til stefnu og því mikilvægt að mati Landvendar að uppfæra fyrirliggjandi aðgerðaráætlun fljótt og vel og leggja fram sannfærandi tímasettar aðgerðir og áfanga að þessum markmiðum.

Þá telur Landvernd að mikilvægt sé að ríkisstjórnin útskýr  hvað felst í „kolefnishlutleysi“ Íslands gagnvart landnýtingu og losun gróðurhúsalofttegunda frá landi. Loftslagsmál snerti marga málaflokka og því sé það fagnaðarefni að forsætisráðuneytið skuli fá það hlutverk að samræma allar stjórnvaldsákvarðanir er lúta að markmiðum um losun gróðurhúsalofttegunda.

Þá segir ennfremur í tilkynningunni:

Rétt er að minna á að náttúruvernd og loftslagsvernd verða að haldast í hendur. Áform um að ganga gegn áliti fagaðila um röðun í flokka rammaáætlunar III er í raun stríðsyfirlýsing. Almenn samstaða hefur verið um að rammaáætlun, byggð á faglegum forsendum, væri forsenda víðtækari sáttar um náttúrvernd og virkjanir. Gangi ríkisstjórnin gegn þessari sátt er sú sáttaviðleitni einskis virði. Í inngangi sáttmálans er talað um sátt um auðlindanýtingu. Hún verður að byggjast á samtali og gagnsæi og byggja á faglegum vinnubrögðum, náttúruverndarlögum og alþjóðasamþykktum. 

 

Stjórn Landverndar óttast þá ákvörðun að fella orkumál og náttúrvernd undir sama ráðuneyti. Það er nauðsynlegt að náttúrvernd eigi talsmann við ríkisstjórnarborðið. Með því að slá þessum málaflokkum saman er mikil hætta á að fjársterkir aðilar sem sækjast eftir að virkja og spilla íslenskri náttúru fái mun meira vægi í ákvarðanatöku. Mikilvægu jafnvægi í stjórnsýslu er raskað með þessari ákvörðun og hvetur Landvernd ríkisstjórnina til að endurskoða þessa ákvörðun. Gleymum því ekki að náttúra Íslands er einstök á heimsvísu og gildi hennar fyrir allt mannkyn, núlifandi og framtíðar, verður ekki metið til fjár.

 

Að mati stjórnar Landverndar telur að fara eigi mjög varlega í uppbyggingu vindorkuvera á Íslandi og að þau eigi skilyrðislaust að falla undir rammaáætlun.  Stjórnin telur fyrirætlanir um að greiða götu vindorkuvera með sérlögum eins og talað er um í stjórnarsáttmálanum mjög varhugaverða.

 

Þá harmar stjórn Landverndar það undanhald sem ríkisstjórnin skipuleggur í verndun Hálendis Íslands. Víðtæk samstaða sé um það í samfélaginu, að mati Landvendar, að vernda beri hálendið fyrir virkjunum og öðrum mannvirkjum. Þá vilja samtökin bæta verndun einstakra svæða, auka fræðslu og bæta öryggi þeirra sem vilja njóta víðerna, frelsis og náttúru á hálendinu. Besta leiðin til þess að mati Landverndar er að stofna þjóðgarð.

Á síðasta kjörtímabili var unnið að því að bæta stjórnsýslu náttúruverndarmála með því að koma þeim undir einn hatt, sem hafði fengið vinnuheitið Þjóðgarðastofnun.  Undrast stjórn Landverndar að ekkert sé  að finna í nýjum stjórnarsáttmála um þetta brýna verkefni, sem gæti þó hlotið betra heiti eins og til dæmis Náttúran.

 

Þá telur Landvernd að tilfærslur á málaflokkum í umhverfismálum séu þeim ekki til framdráttar.  Náttúruvernd og loftslagsmál verða að skoðast saman og erfitt verður fyrir einn ráðherra að gæta hagsmuna umhverfisins um leið og hann er ráðherra orkumála. Mjög slæmt er að slíta skipulagsmál úr samhengi við náttúruvernd og færa þau yfir í ráðuneyti innviða.  Þá eru landgræðsla og skógrækt einnig gríðarstór umhverfismál sem verður að skoða heildstætt í samhengi við náttúrvernd og loftslagsmál.

Stjórn Landverndar harmar að ríkistjórnin skuli ekki lýsa eftir samstarfi við frjáls félagsamtök og koma ákvæðum Árósasamningsins um réttindi slíkra samtaka til framkvæmda, eins og vera ber.

Þá vantar í sáttmálann að skýra hvernig á að „vaxa til velsældar” en um leið koma á hringrásarhagkerfi og leysa úr því ófremdarástandi sem mikil neysla síðustu áratuga hefur skapað í auðlindanýtingu heimsins og í úrgangsmálum á Íslandi.

Stjórn Landverndar óskar nýrri ríkisstjórn heilla í starfi og mun hér eftir sem hingað til leitast við að vera rödd náttúru- og umhverfisverndar með um 6.000 félagsmenn að bakhjarli. Í viðhengi eru yfirlit yfir 11 mál sem stjórnin leggur áherslu á um þessar mundir.

———

Stjórn Landverndar vill nýta þessi tímamót til að tilgreina þau mál sem samtökin telja að eigi að hafa forgang og hvetur ríkisstjórnina til að veita þeim stuðning í starfinu sem framundan er.

  1. Lýsa strax yfir neyðarástandi í loftslagsmálum og bæta stjórnsýslu loftslagsmála tafarlaust.
  2. Setja fram framkvæmdaráætlun um Jarðefnaeldsneytislaust Ísland 2035 og bann við innflutningi á bensín- og díselbílum frá 2023, sem lagt yrði fyrir Alþingi á næsta löggjafaþingi.
  3. Lögfesta markmið í loftslagsmálum og koma stighækkandi gjaldi á alla losun gróðurhúsaloftegunda – en tryggja um leið að gjaldið auki ekki á misskiptingu í samfélaginu (á næsta löggjafaþingi).
  4. Lögbinda ákvæði Árósasamningsins um réttindi umhverfissamtaka, samræma lög um mat á umhverfisáhrifum skv. alþjóðlegum skuldbindingum og innleiða ákvæði um umhverfis- og náttúrvernd í stjórnarskrá (fyrir árið 2024).
  5. Heimila sveitarfélögum að leggja gjöld á nagladekk í þeim tilgangi að draga úr notkun þeirra og bæta þannig loftgæði og heilsufar íbúa (á næsta löggjafaþingi).
  6. Stofna þjóðgarð til að styrkja vernd hálendisins, auka öryggi og bæta aðgengi gesta, endurskipuleggja stjórnsýslu náttúruverndar til að efla hana og hagræða,
  7. Að fylgja eftir vinnu við rammaáætlun, og setja á ótímabundið bann við frekari virkjunum á hálendinu (á þarnæsta löggjafarþingi).
  8. Gera stórtækt átak til endurheimtar vistkerfa svo sem eins og votlenda og stöðva beit á illa förnu landi. Bæta og fylgja eftir lögum og reglum um framandi ágengar tegundir og lögum er varða lausagöngu búfjár (fyrir árslok 2022).
  9. Innleiða umbætur á styrkjakerfum svo tryggja megi sjálfbæra landnýtingu og matvælaframleiðslu (fyrir árslok 2023).
  10. Framfylgja af krafti stefnu í úrgangsmálum „í átt að hringrásarhagkerfi“ og opna með lagabreytingum aðgengi almannahagsmunasamtaka að stjórn Úrvinnslusjóðs (á næsta löggjafaþingi).
  11. Koma böndum á og stöðva neikvæð umhverfisáhrif fiskeldis í sjókvíum með nauðsynlegum umbótum á lögum og reglum sem um það gilda (fyrir árslok 2022).

 

 

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þykir miður að kaupin á TM hafi orðið umdeild

Þykir miður að kaupin á TM hafi orðið umdeild
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Fyrrverandi forstjóri Reita: Hús eru byggð of þétt og of mikill hraði í byggingarframkvæmdum

Fyrrverandi forstjóri Reita: Hús eru byggð of þétt og of mikill hraði í byggingarframkvæmdum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Katrín og kosningastjórinn afsala sér biðlaunum

Katrín og kosningastjórinn afsala sér biðlaunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sagan muni dæma þau og tíminn leiða í ljós hvað það muni kosta Reykvíkinga – „Þetta eru daprir tímar“

Sagan muni dæma þau og tíminn leiða í ljós hvað það muni kosta Reykvíkinga – „Þetta eru daprir tímar“