fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Stjórnarflokkarnir reyna að leysa ágreiningsefni og stokka ráðuneyti upp

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 1. október 2021 07:59

Frá undirritun ríkisstjórnarsáttmálans 2017.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Formenn stjórnarflokkanna eru sagðir vera jákvæðir um áframhaldandi samstarf þrátt fyrir að togstreita sé um fyrirferðarmikla málaflokka á borð við heilbrigðismál, umhverfis- og orkumál og skattamál. Þetta eru mál sem voru viðkvæm í stjórnarsamstarfinu á síðasta tímabili en áhersla er lögð á að finna flöt á þeim áður en haldið verður lengra í viðræðum flokkanna.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Fram kemur að miklar líkur séu taldar á að Katrín Jakobsdóttir verði áfram forsætisráðherra ef af áframhaldandi samstarfi verður en líklega verði stokkað upp í stjórninni að öðru leyti.

Blaðið segist hafa heimildir fyrir að ráðuneytisstjórar ráðuneytanna hafi fundað tveimur vikum fyrir kosningar og rætt möguleika á tilflutningi verkefna á milli ráðuneyta. Þeir koma þó ekki að uppstokkun verkefna fyrr en á síðari stigum.

Margir möguleikar eru sagðir koma til greina við fjölgun ráðuneyta. Rætt er um nýtt innviðaráðuneyti sem Framsóknarflokkurinn hefur talað fyrir og að skipta sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu upp í tvö ráðuneyti. Ef af því verður kæmi að sögn til greina að skógrækt og landgræðsla færist frá umhverfisráðuneytinu yfir í landbúnaðarráðuneytið.

Fréttablaðið segir að ólíklegt þyki að Vinstri grænir muni gjalda fyrir fylgistapið í kosningunum með minni áhrifum innan ríkisstjórnarinnar. Flokkurinn verði líklega áfram með þrjú ráðuneyti. Flokkurinn muni þó væntanlega missa embætti forseta Alþingis og gæti Sjálfstæðisflokkurinn fengið það.

Ef ráðuneytum verður fjölgað mun Framsóknarflokkurinn væntanlega njóta þess og fá fjóra ráðherra og Sjálfstæðisflokkurinn halda sínum fimm.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurður Amlín nýr rekstrarstjóri hjá Stöð 2

Sigurður Amlín nýr rekstrarstjóri hjá Stöð 2