fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Segir Vikuna með Gísla Marteini og fleiri þætti beita áróðri Bjarna til stuðnings – „Kannski versti stjórnmálamaður Íslandssögunnar“

Jón Þór Stefánsson
Sunnudaginn 3. janúar 2021 20:00

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Mynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, fer hörðum orðum um Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra, og ákveðna fjölmiðla í pistli sem birtist á Miðjunni í gær. Gunnar Smári telur að í raun hafi Bjarni aldrei verið mjög vinsæll stjórnmálamaður, heldur sé almenningur með neikvæða mynd af honum í hausnum. Hann heldur því fram að meginstraumsmiðlar reyni sífellt að mála upp fallega mynd af ráðherra, og birti áróður honum í vil.

Hann byrjar á að benda á kannanir MMR sem sýndu traust til stjórnmálafólks. Hann benti þó á að lítið hefði verið gert af slíkum könnunum undanfarið, sem hann segir hluta af áróðri fjölmiðla. Í könnunum sem Gunnar vitnar í var traust í garð Bjarna hæst 34%, en lægst 15%, og þá var vantraustið í hærri prósentum.

„Ég lenti í umræðu um traust til forystufólks í stjórnmálum hér á Facebook og kvartaði þar undan því að MMR og Gallup virðast hætt að mæla traust til stjórnmálafólks, ég finn ekkert nýrra en frá 2016. Svona mælingar eru mikilvægar, m.a. til að vinna gegn áróðri meginstraumsmiðla sem sífellt reyna að selja almenningi valdafólkið, hæfni þess og heiðarleika. En talið barst að Bjarna Benediktssyni og ég setti inn á þráðinn með vísan til kannana MMR:

Þarna má sjá söguþráð frá því að Bjarni var gerður að formanni Sjálfstæðisflokksins 2009 fram að Panamaskjölunum. Hann byrjar sem óreyndur formaður með 18% traust en 55% vantraust. Í harðri stjórnarandstöðu gegn ríkisstjórn Samfylkingar og VG versnar þetta hjá Bjarna, hann sekkur niður í 15% traust (alkul) og 66% vantraust (það sýður undir rassinum á honum). Því meira sem landsmenn kynnast Bjarna því minna traust bera þeir til hans. Svo verður hann fjármála- og efnahagsmálaráðherra í ríkisstjórn Sigmundar Davíðs. Þá ýtir aðdáun fólks á valdinu Bjarna upp í 34% traust og 43% vantraust stuttu eftir myndun stjórnarinnar. En þetta fellur fljótt niður. Árið 2015, fyrir Panama, var traustið fallið niður í 23% og vantraustið stigið upp í 58% (þetta er verra en Nixon 1974). Eftir Panama var traustið í 22% (það voru aðeins harðkjarna hægrimenn eftir, innmúraður og innvígðir, svo fallið er ekki mikið) og vantraustið fór upp í 61% (Panama bætti aðeins við vantraustið, en það var barmafullt fyrir, svo hækkunin var ekki umtalsverð).“

Gunnar segir að íslenska þjóðin fyrirlíti Bjarna, sem hann kallar þjóðníðing og skíthæl. Þá nefnir hann nokkra miðla sem honum finnst styðja við Bjarna með áróðri og sýni hann sem ábyrgan landsföður, en miðlarnir sem hann nefnir eru Kastljóss, Silfrið, Vikan með Gísla Marteini. Að lokum fullyrðir Gunnar að Bjarni sé mögulega versti stjórnmálamaður Íslandssögunnar.

„Það er ein af lygum meginstraumsmiðla, sem snúast um rassgatið á hinum ríku og valdamiklu, að Bjarni njóti trausts. Þjóðin fyrirlítur þennan mann, skynjar vel að hann er þjóðníðingur sem vill brjóta niður allt sem einhvers virði er í samfélaginu, færa eignir og auðlindir almennings til sinna einkavina. Bjarni er það sem heitir á almennri leigubílstjórísku: algjör skíthæll. En með kerfisbundinni vinnu meginstraumsmiðla, linnulausum áróðri Kastljóss, Silfurs, Vikunnar með Gísla Marteini o.s.frv. hefur því verið haldið fram að Bjarni sé aðdáunarverður. Þetta hefur ekki haft nein áhrif á almenning, hann veit alveg hver Bjarni er og fyrir hvað hann stendur. En það hefur verið búinn til hliðarveruleiki meginstraumsmiðla þar sem umræðan fer fram, delluveröld þar sem Bjarni er landsfaðir sem allir bugta sig fyrir. Þegar staðreyndin er sú að mikill meirihluti almennings telur að maðurinn sé siðlaus og hættulegur, kannski versti stjórnmálamaður Íslandssögunnar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“