fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Eyjan

„Líklega eru fáar atvinnugreinar sem fólk hefur meiri skömm á en stjórnmál“

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 28. júní 2020 14:11

Alþingi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Líklega eru fáar atvinnugreinar sem fólk hefur meiri skömm á en stjórnmál.“ Þetta kemur meðal annars fram í grein eftir Benedikt Jóhannesson, stærðfræðing og stofnanda Viðreisnar, í Morgunblaðinu í gær undir fyrirsögninni „Virðing“. Þar fjallar hann, eins og fyrirsögnin ber með sér, um Alþingi og stjórnmál.

Benedikt byrjar á að segja frá fyrirtæki sem hann kynntist eitt sinn þar sem mikill agi ríkti, reglur kváðu á um snyrtilegan klæðaburð, og reglur um viðveru og mætingar voru strangar og áhersla var lögð á að starfsmenn fylgdu verkferlum og lykju verkefnum.

„Reksturinn gekk ágætlega, en mér fannst reglurnar allt of stífar fyrir minn smekk, nýkominn úr akademísku frelsi þar sem menn máttu haga sér eins og þeim sýndist. Ég spurði starfsmann hvort fólki fyndist ekki þrúgandi að vinna við slíkar aðstæður. Svarið kom mér á óvart. „Nei“, sagði hann. „Við sjáum að reglurnar gilda um alla, yfirmenn gera sömu kröfur til sín og annarra. Hér eru engar prímadonnur, engir séra Jónar.““

Segir Benedikt að þetta hafi reynst vera viðhorf flestra starfsmanna, þeim hafi þótt vænt um fyrirtækið og það hafi notið velgengni. Víkur hann síðan að stjórnmálunum:

„Líklega eru fáar atvinnugreinar sem fólk hefur meiri skömm á en stjórnmál. Flestir Íslendingar eru sammála um að Trump Bandaríkjaforseti sé einhver mesti kjáni sem sest hefur á valdastól hin seinni ár. Bandaríkjamenn eru þó ekki sama sinnis. Trump hélt að Finnland væri hluti Rússlands, hann talar um konur með niðrandi hætti og finnist að það sé „ágætisfólk“ í haturssamtökum. Samt hefur fylgi hans aldrei farið niður fyrir 35% á kjörtímabilinu.“

Segir hann og víkur síðan að Íslandi þar sem aðeins 23% þjóðarinnar bera mikið traust til Alþingis og segir Benedikt að ekki þurfi að horfa lengi á umræður frá Alþingi til að átta sig á að margir þingmenn mættu taka þingfundi hátíðlegar.

„Ég er einn þeirra sem telur að fólk eigi að klæða sig sparilega í þingsal og sýna Alþingi þannig virðingu. Verra er hve margar ræður eru illa undirbúnar, ræðumenn tafsa og tuldra, endurtaka sig og rekur í vörðurnar. Sumir koma aftur og aftur upp til þess að segja það sama – eða ekkert. Aðrir koma í ræðustól til þess að segja aulabrandara. Örfáir mæta helst aldrei. Stöku eru dónalegir og orðljótir.“

Segir Benedikt og bætir við að hann telji alþingismenn upp til hópa vera heiðarlegt fólk sem mætti þó oftar vera sjálfum sér samkvæmt. Hann segir síðan að meginskýringin á vantrú fólks á þingmönnum sé örugglega að þeir séu sjálfum sér verstir.

„Erfitt er að verjast brosi þegar VG-liðar tala með vandlætingu um málþóf stjórnarandstöðu, þingmenn sem árum saman töluðu mest en sögðu minnst á löggjafarsamkomunni. Í þingsal á ekki að vera samkeppni í því hver getur hneykslast mest, heldur vettvangur uppbyggilegra umræðna. En engum dettur neitt uppbyggilegt í hug meðan Miðflokksmenn mæra speki hver annars í þingsal eða á öðrum vettvangi. Meginvandi íslenskra stjórnmálamanna er þó hræðslan við að ná niðurstöðu og klára mál. Þeir ýta mikilvægum málum á undan sér: Markaðsgjald í sjávarútvegi, skynsamleg stjórnarskrá, jafn kosningaréttur, stöðugur gjaldmiðill. Þingmönnum er ókleift að klára þessi mál vegna þess að þau snerta jafnrétti og allra hag. Ekki sérhagsmuni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt