fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Úlfúð í borgarstjórn – Segir Hildi hafa sett met í ósannindum

Jón Þór Stefánsson
Mánudaginn 22. júní 2020 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, borgarfulltrúi Viðreisnar og formaður borgarráðs gagnrýnir Hildi Björnsdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins harðlega í pistli sem birtist á Vísi í dag. Þórdís segist hafa hlustað á útvarpsþáttinn Vikulokin sem eru á dagskrá á Rás 1 á laugardögum, en þar var Hildur gestur.

Þórdís segir að Hildur hafi verið ansi dugleg að fara með ósannindi. Hún segir að fjármál séu orðin að þráhyggju Sjálfstæðisflokksins og að þasð hafi sést í þættinum.

„Ég hef verið að planta trjám og sinna skyldum mínum sem skógarbóndi í Reykjadal. Í sveitinni er kona ekki að fylgjast með öllum umræðuþáttum í beinni. Það var því ekki fyrr en í gærkvöldi sem ég hlustaði á Vikulokin, þar sem ég held að Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins hafi sett einhvers konar met í dylgjum og ósannindum.

Borgin er vel rekin, með traustan og góðan fjárhag. Þetta birtist enn á ný í síðasta ársreikningi borgarinnar sem Sjálfstæðisflokkurinn vildi ekki ræða, því hann taldi pólitíska umræðu um endurskoðunarstaðla mikilvægari. Sjálfsmynd flokksins byggir á því að enginn kunni að fara með opinber fjármál nema hann einn. Fjármál verða því að einhverri þráhyggju sem verður sérstaklega vandræðaleg þegar að aðrir flokkar sýna að þeim er treystandi fyrir fjármálum. Þessa þráhyggju endurómaði Hildur, því línuna hefur hún jú lært í Valhöll, en nær ekki að hafa rétt eftir í einni einustu setningu.“

Þá spyr Þórdís hvort að Hildur hafi verið að ásaka flokksfélaga sína í öðrum sveitarfélögum um fjármálaóreiðu. Hún segir að Hildur beiti þekktri taktík með því að ræða einungis Reykjavík, en ekki önnur sveitarfélög þar sem að Sjálfstæðisflokkurinn er í meirihluta.

„Hildur hélt því fram að meirihlutinn hefði sent ríkinu bréf og óskað eftir 50 milljörðum vegna kórónuveirunnar. Þetta er alrangt. Bréfið sem hún vísar í var frá öllum sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu og undirritað af Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ.

Af hverju er einungis rætt um Reykjavíkurborg hér, eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu þar sem Sjálfstæðisflokkurinn fer ekki með völd? Það var ótrúlegt að hlusta á borgarfulltrúann setja borgina þarna fremsta í umræðu sem er á borði nánast allra sveitarfélaga landsins. Er Hildur virkilega að saka flokksfélaga sína sem stýra Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi, Seltjarnarnesi og Mosfellsbæ um fjármálaóreiðu?

Þetta er þekkt taktík, að ræða einungis Reykjavík, til að þurfa ekki að ávarpa ábyrgð Sjálfstæðisflokksins hér á höfuðborgarsvæðinu. Þetta mátti sjá í umræðu um Sorpu, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn á nær alla fulltrúa á eigendavettvangi og hefur fulltrúa í stjórn. Þetta má líka sjá í umræðu um borgarlínu, sameiginlegu verkefni allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn ræður ríkjum með samkomulagi undirrituðu af formanni flokksins.“

Að lokum segir Þórdís að Hildur sé að grafa yfir klofning í Sjálfstæðisflokknum. Hún hafi leitt frjálslyndan arm flokks þar sem að íhaldssamari raddir ráða ríkjum.

„Eins og fram kom í þættinum, þá styður Hildur borgarlínu. Bara ekki nóg til að grafa ekki undan henni til að reyna að skora ódýr pólitísk mörk. Tilgangur hennar er augljós. Hildur er að reyna að grafa yfir þá staðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn í borginni er margklofinn og að það er lítill samhljómur á milli Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og í öðrum sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins.

Hildur hefur leitt frjálslynda arm síns flokks í borginni. Því miður hefur sá armur orðið undir í borgarstjórnarflokknum og íhaldssamari raddir, sem telja framtíðarsýn borgarinnar sé að líta aftur til 20. aldar, hafa orðið ofan á. Þennan ágreining er ekki einu sinni reynt að fela, þegar samflokksfólk hennar kýs og bókar gegn Hildi í nefndum borgarinnar. Það væri miður ef Hildur er að gefast upp á sinni frjálslyndu sýn á framþróun borgarinnar til að falla betur í kramið hjá íhaldssamari öflum í eigin flokki.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“