fbpx
Sunnudagur 06.júlí 2025
Eyjan

Segir verkalýðsforystuna kjósa atvinnuleysi í stað þess að viðurkenna vandamálið

Trausti Salvar Kristjánsson
Föstudaginn 29. maí 2020 09:54

Hörður Ægisson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hörður Ægisson, ritstjóri Markaðarins, segir í leiðara Fréttablaðsins að afstaða verkalýðshreyfingarinnar í kjölfar kórónufaraldursins eigi eftir að verða þjóðinni dýrkeypt til lengri tíma litið, þar sem verkalýðsforystan fáist ekki til að viðurkenna að lítil innistæða hafi verið fyrir launahækkunum undanfarinna kjarasamninga. Hann segir engar lausnir koma úr þeirri átt, aðeins ófriður og gífuryrði:

„Þetta verða erfiðir tímar á vinnumarkaði. Verkalýðshreyfingin hefur sýnt að þar er ekki að vænta samstöðu um aðgerðir sem gætu mildað höggið sem atvinnulífið er að taka á sig og um leið komið í veg fyrir enn meira atvinnuleysi. Frá forystufólki hennar koma engar raunhæfar lausnir, aðeins gífuryrði þar sem efnt er til ófriðar á hendur fólki og fyrirtækjum sem eru að leita leiða til að lágmarka skaðann meðan við komumst í gegnum þessa kreppu. Í stað þess að taka eitt skref aftur á bak, og gangast við því að við höfum farið fram úr okkur að undanförnu í innstæðulausum launahækkunum, þá kjósa menn frekar þverrandi samkeppnishæfni og holskeflu atvinnuleysis. Það er merkileg afstaða sem á eftir að verða okkur sem þjóð dýrkeypt til lengri tíma litið.“

Standast ekki hæfniskröfurnar

Hann  minnist einnig orða seðlabankastjóra um verkalýðsforystuna:

„Seðlabankastjóri leyfði sér í liðinni viku að segja það sem við blasir flestu óbrjáluðu fólki. Forystufólk verkalýðshreyfingarinnar hefur ekki risið undir þeirri ábyrgð sem á henni hvílir í þessum efnahagslegu hamförum. Þegar skrifað var undir lífskjarasamninginn, skömmu eftir fall WOW air og fyrirsjáanlegur samdráttur var í kortunum í ferðaþjónustu, var vitað að þær hækkanir sem um var samið yrðu mörgum fyrirtækjum þungbærar.“

Kjánar

Hörður segir það blasa við að hækkun launavísitölunnar í krepputíð gangi ekki upp:

„Í dag, þegar við stöndum frammi fyrir mestu efnahagskreppu í hundrað ár, þá þarf vart að taka það fram að geta atvinnulífsins til að taka á sig frekari launahækkanir er engin. Á sama tíma berast okkur þau tíðindi að launavísitalan hafi hækkað um 3,3 prósent í apríl – hún hefur hækkað um næstum 7 prósent síðustu tólf mánuði – sem er mesta aukning sem mælst hefur á milli mánaða í eitt ár. Aðeins kjáni getur látið sér detta í hug að þetta geti gengið upp án þess að illa muni fara.“

Hörður nefnir einnig að nú um stundir sé svikalognið í hámarki og áhrif kreppunnar muni ekki koma fram með þunga fyrr en í haust, þegar uppsagnarfrestur fólks rennur út:

„Við tekur tímabil langvinns atvinnuleysis, mun meira en við höfum nokkurn tíma áður upplifað, og mikill samdráttur í einkaneyslu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun