fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Eyjan

Sigurjón segir þau vera verstu ráðherrana – „Ömurlegt viðhorf sem sýnir illan hug“

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 20. október 2020 13:36

Sigurjón M. Egilsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hýðinu var flett af á Alþingi í gær og ljós komu vondir ráðherrar.“

Þetta segir Sigurjón M. Egilsson, ritstjóri Miðjunnar, í grein sem birtist á Miðjunni í dag. Ráðherrarnir sem Sigurjón segir að séu vondir eru Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.

Enn heldur Ásmundur Einar meira en milljarði sem átti fyrir löngu að renna til að styrkja stöðu öryrkja. Hann ætlar ekki að skila fátækasta fólkinu peningum sem þeir eiga inni. Og hver vegna ekki? Jú, það er kominn kosningavetur segir ráðherrann. Aumara yfirklór verður vandfundið,“ segir Sigurjón og vitnar svo í Ásmund. „Þegar þingmálaskrá var gefin út fyrir skömmu tók sá sem hér stendur ákvörðun um að ekki yrði mögulegt að ráðast í þessar stóru kerfisbreytingar núna á kosningavetri,“ sagði Ásmundur.

„Á meðan fá öryrkjar ekki peninga sem löngu er búið að lofa þeim. Ásmundur Einar þvinga öryrkjar í starfsgetumat. Þeir fá ekkert en vilji ráðherrans og ríkisstjórnarinnar verða ofan á,“ segir Sigurjón þá og bætir við því sem honum finnst um viðhorf Ásmunds. „Ömurlegt viðhorf sem sýnir illan hug.“

„Hvað verður í dag?“

Næst tekur Sigurjón fyrir Áslaugu Örnu. Sigurjón byrjar á því að vitna í Ágúst Ólaf Ágústsson, þingmann Samfylkingarinnar.

„Fyrir 16 mánuðum samþykkti Alþingi þingmál sem ég lagði fram ásamt 15 öðrum þingmönnum, um að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Ólíkt flestum þingmannamálum var þetta mál samþykkt og var ríkisstjórninni falið að undirbúa lögfestinguna. Til viðbótar átti ríkisstjórnin að leggja fram frumvarp á Alþingi sem fæli í sér lögfestingu samningsins og aðlögun íslenskra laga að honum eigi síðar en 13. desember 2020,“ sagði Ágúst og spurði Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra um málið.

„Ég þekki það ekki alveg og verð bara að viðurkenna það hér. En ég skal með gleði taka þetta upp við dómsmálaráðherra og kanna það hvar vinnan stendur,“ sagði Katrín en Sigurjón segir að hún hafi heitið því að ýta við Áslaugu Örnu vegna málsins.

Sigurjón segir þetta vera vont mál. „Alþingi samþykkir og gefin er út dagsetning. Ráðherranum virðist vera eins mikið sama um afstöðu Alþingis. Lætur samþykktir þess sem vind um eyrun þjóta,“ segir hann. „Í gær sást gagnleysa tveggja ráðherra. Hvað verður í dag?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun