fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
Eyjan

Punglausir aumingjar og bæjarstjóri sem er víkari

Egill Helgason
Þriðjudaginn 3. mars 2020 22:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skáldsagan Brúin yfir Tangagötuna eftir Eirík Örn Norðdahl hefur vakið mikla athygli. Þetta er ástarsaga, býsna manneskjuleg, en líka bráðskemmtileg samtímalýsing á Ísafirði. En eins og höfundurinn sjálfur bendir á er eitt einkenni samtímans hvað hann staldrar stutt við:

„Bækur sem gerast í samtímanum eru misfljótar að verða bækur um fortíðina. Þessari lá fullmikið á.“

Vísað er í blaðsíðuna sem má sjá hér að ofan. Þar er talað um bæjarstjórann sem er „víkari“, semsé frá Bolungarvík. Engum sem þekkir til dylst að þarna er átt við Guðmund Gunnarsson bæjarstjóra.

En  það gerðist svona um það bil að bókin kom út að Guðmundur var rekinn úr embætti bæjarstjóra. Guðmundur svarar Eiríki reyndar sjálfur á Facebook og segir:

„Jæja? Sé ekki betur en að þessar mannlýsingar séu spot on. Annars er þetta þrusufín skrudda hjá þér. Nennirðu að skrifa aðra snöggvast? Mér leiðist.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þurfti að stilla til friðar eftir háðsglósur á Alþingi þar sem þingmaður móðgaðist og meirihlutinn flissaði – „Bíddu, hvar hefurðu verið?“

Þurfti að stilla til friðar eftir háðsglósur á Alþingi þar sem þingmaður móðgaðist og meirihlutinn flissaði – „Bíddu, hvar hefurðu verið?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að flensa afturendann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að flensa afturendann
Eyjan
Fyrir 1 viku

Diljá Mist Einarsdóttir: Trump hefur sértrúarsöfnuð í kringum sig – Ísland hefur sérstöðu

Diljá Mist Einarsdóttir: Trump hefur sértrúarsöfnuð í kringum sig – Ísland hefur sérstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Heimur í höndum skemanns

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Heimur í höndum skemanns
Eyjan
Fyrir 1 viku

Áslaug Arna tekur sér leyfi á þingi til að elta langþráðan draum

Áslaug Arna tekur sér leyfi á þingi til að elta langþráðan draum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Steinunn Ólína skrifar: Óttaslegnir menn

Steinunn Ólína skrifar: Óttaslegnir menn