fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Íslandsstofa fær 1.575 milljónir með nýjum samningi við ríkið – „Styrkir stoðir efnahagslífsins“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 28. febrúar 2020 09:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Utanríkisráðherra, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og framkvæmdastjóri Íslandsstofu hafa undirritað nýjan þjónustusamning um starfsemi Íslandsstofu. Nýi samningurinn liggur til grundvallar starfsemi Íslandsstofu til þess að efla ímynd og orðspor Íslands, styrkja samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs á erlendum mörkuðum og laða erlenda ferðamenn og fjárfestingu til landsins, samkvæmt tilkynningu.

„Íslandsstofa er nú betur í stakk búin en nokkru sinni áður til að leiða markvissa sókn á erlenda markaði í kjölfar þeirra grundvallarbreytinga sem við gerðum 2018. Á grunni ítarlegrar stefnumótunarvinnu Íslandsstofu og Útflutnings- og markaðsráðs og samningsins sem við höfum nú undirritað er tryggt að atvinnulíf og stjórnvöld muni vinna sem eitt lið á útivelli,“

sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra. Samningurinn felur meðal annars í sér enn nánara samráð Íslandsstofu og viðskiptafulltrúa utanríkisþjónustunnar erlendis.

Samhljómur stefnumótunar tryggður

„Með samningnum er fjármögnun verkefna Íslandsstofu tryggð til lengri tíma. Fimm af sex nýjum stefnumótandi áherslum Íslandsstofu heyra undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Með þeim og þessum samningi tryggjum við samhljóm við stefnumótun stjórnvalda og leggjum traustan grunn að markvissu og árangursríku markaðsstarfi á erlendri grundu,”

segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Grunnurinn í fjármögnun Íslandsstofu er markaðsgjald sem fyrirtækin í landinu greiða auk framlags atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis sem samkvæmt samningnum verður 1.575 milljónir króna á árunum 2020-2024 eða 300 – 375 milljónir króna á ári. Samningurinn er gerður skv. lögum um Íslandsstofu og byggir m.a. á stefnumótun Íslandsstofu og stefnumótun stjórnvalda í ferðaþjónustu. Hann tekur við af fyrri samningum við Íslandsstofu um almennt kynningar- og markaðsstarf fyrir Ísland, m.a. samningi atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis um markaðsstarf undir merkjum Ísland allt árið (Inspired by Iceland) og samningi um markaðsstarf undir merkjum Iceland Naturally.

Hlutverk Íslandsstofu, sjálfseignastofnunar, er lögum samkvæmt skilgreint sem samstarfsvettvangur atvinnulífs, hagsmunasamtaka, stofnana og stjórnvalda um stefnu og aðgerðir. Lögum um Íslandsstofu var breytt árið 2018 og nýtt Útflutnings- og markaðsráð stofnað. Kváðu breytt lög á um að nýr þjónustusamningur skyldi gerður á milli ríkisins og Íslandsstofu auk þess sem Íslandsstofu var jafnframt falið að móta langtímastefnu um aukningu útflutningstekna. Þjónustusamningurinn er lokahnykkurinn á þessari vinnu en ný langtímastefna stjórnvalda og atvinnulífs fyrir íslenskan útflutning var kynnt haustið 2019.

Styrkir stoðir efnahagslífsins

„Samningurinn felur í sér að unnið verður að því að efla samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs á erlendum mörkuðum, sem og laða erlenda ferðamenn og fjárfestingu til landsins, sem styrkir stoðir efnahagslífsins. Því er mikilvægt að hann skuli vera í höfn,“

segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.

Hildur Árnadóttir, formaður stjórnar Íslandsstofu, segir þjónustu Íslandsstofu afar mikilvæga fyrir atvinnulífið.

„Samstarf atvinnulífs og stjórnvalda um að auka útflutningstekjur þjóðarbúsins á sér langa sögu og hefur verið mikilvægur þáttur í að auka verðmætasköpun íslensks þjóðfélags. Íslandsstofa ef kjölfestuaðili í því samstarfi. Með nýrri útflutningsstefnu og undirritun samningsins hefur starfsemi hennar verið markaður skýr rammi til næstu fimm ára,“

segir Hildur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“