„Heyrði í nokkrum Vestfirðingum í morgun sem allir voru slegnir. Flóðin 1995 rifjast upp og það skelfilega manntjón sem varð þá. Heyrði líka í nokkrum kærum vinum að vestan og fann hversu þungt þessir atburðir lögðust á þá. Í dag erum við öll Vestfirðingar,“
segir Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra á samfélagsmiðlum í morgun, í kjölfar snjóflóðanna fyrir vestan.
Hun segir við mbl.is að ríkisstjórnin muni ekki grípa til sérstakra aðgerða að svo stöddu, en ljóst sé að aukafjárveitingar sé þörf vegna þess tjóns sem veðrið hafi valdið undanfarnar vikur.
Katrín sat fund í samhæfingarmiðstöð almannavarna í Skógarhlíð í morgun, ásamt dómsmálaráðherra, sem sagði að spyrja þyrfti spurninga, þar sem annað flóðið fór yfir varnargarðinn og á eitt hús þar sem stúlka á fermingaraldri lenti undir, en slasaðist ekki:
„Það er þó þannig að þegar þetta fer á eitt hús þá þurfum við að spyrja spurninga. Þær upplýsingar sem við fáum er að þetta hafi farið yfir vegna krafts og hafi verið mjög afmarkað við þetta hús. Það er einu húsi of mikið. Hugur okkar er hjá öllum á svæðinu og stúlkunni sérstaklega,“
sagði Áslaug Arna við mbl.is.
„Það hefur reynt mikið á almannavarnakerfið síðustu vikur og það er afar mikilvægt að við sjáum að kerfið sem slíkt hefur virkað vel. Við þurfum líka að sjá hvort hægt sé að gera betur. Samhæfingarmiðstöðin heldur áfram störfum og metur ástandið í birtingu og það er afar mikilvægt að þó þetta hafi farið vel að vera áfram vakandi fyrir því hvort það sé hætta á þessu svæði eða öðrum svæðum. Þetta þarf að skoða í dag,“
sagði Áslaug Arna.