Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, fékk Fálkaorðuna afhenta á Bessastöðum í gær „fyrir atbeina undir merkjum samtakanna Indefence og framlag til íslensks atvinnulífs,“ líkt og segir í tilkynningu frá Bessastöðum.
Áratugur er liðinn í dag frá því að 56 þúsund undirskriftir voru afhentar Ólafi Ragnari Grímssyni, þáverandi forseta Íslands, með áskorun um að synja Icesave-lögunum staðfestingar, sem var og gert og kaus þjóðin að fella lögin með 98% atkvæða í þjóðaratkvæðisgreiðslu.
Morgunblaðið minnist þessa í dag og talar við forsvarsmenn InDefence hópsins, þá Sigurð Hannesson og Magnús Árna Skúlason, hagfræðing:
„Við erum bjartsýnisfólk, og fyrst Ólafur Ragnar tók á móti okkur á þessum tíma þótti okkur líklegt að þetta yrði jákvætt. Sérstaklega vegna þess að þetta var mjög mikilvægt mál. Forsetinn hafði sjálfur áður vitnað til þess að hann hefði málskotsrétt. En þetta hefði þó algerlega getað fallið á báða vegu. Mörg sjónarmið voru uppi í samfélaginu,“
segir Magnús aðspurður um hvort hópurinn hafi verið vongóður um jákvæð viðbrögð Ólafs.
„Það er býsna gaman að þetta fari saman og að verið sé að horfa til þessara verka og svo þeirra sem í
kjölfarið komu. Það var auðvitað ánægjulegt að forsetinn skyldi svara kalli þjóðarinnar. Niðurstaðan úr þjóðaratkvæðagreiðslunni var athyglisverð því að lögunum var hafnað með rúmum 98% prósentum. Því má segja að þjóðin hafi sameinast á erfiðum tímum eftir fjármálaáfallið,“
segir Sigurður og þakkar þeim fjölda fólks sem kom að vinnunni:
„Ég lít svo á að það sé verið að veita öllu þessu fólki viðurkenningu.“
Þór Whitehead, sagnfræðingur, skrifar einnig grein um InDefence hópinn og Icesave málið í Morgunblaðið er nefnist Þeir vörðu Ísland. Hann segir þjóðina í þakkarskuld við InDefence hópinn:
„Í krafti þessarar baráttu og fullveldis landsins gat ríkissjóður krafið þrotabú föllnu fjármálafyrirtækjanna (að mestu í eigu erlendra vogunarsjóða) um svokölluð stöðugleikaframlög af útgreiðslum andvirðis eigna í íslenskum krónum. Sl. haust námu tekjur af þessum framlögum alls 445 milljörðum króna, þar af hafði um 200 milljörðum verið varið til greiðslu ríkisskulda. Til viðbótar því eru aðrar greiðslur föllnu fjármálafyrirtækjanna til hins opinbera og áætlað er að framlögin geti numið að minnsta kosti 600 milljörðum króna. Stöðugleikaframlögin eiga því ríkan þátt í hinni einstöku endurreisn íslenska fjármálakerfisins, en ekki er minna um vert hvernig óeigingjörn barátta InDefencehópsins reisti við heiður þjóðarinnar gagnvart umheiminum. Íslendingar eiga forvígismönnum hópsins mikla þökk að gjalda og framtaks þeirra verður minnst á meðan þjóðin telur það nokkurs virði að fá ráða mikilvægustu hagsmunamálum sínum.“