fbpx
Mánudagur 11.ágúst 2025
Eyjan

Forsetahjón taka þátt í aldarafmæli þjóðræknisfélaga í Vesturheimi

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 16. maí 2019 12:29

Eliza Reid forsetafrú ásamt eiginmanni sínum

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, og frú Eliza Reid halda í dag til Winnipeg í Manitoba til að taka þar þátt í aldarafmæli Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vesturheimi, Icelandic National League.

Forseti mun flytja hátíðarræðu í tilefni afmælisins og eiga fundi með Janice Filmon, fylkisstjóra Manitoba, Brian Pallister, forsætisráðherra Manitoba, Brian Bowman, borgarstjóra Winnipeg, og forystumönnum Manitobaháskóla þar í borg.

Í ferðinni munu forsetahjónin einnig skoða Mannréttinda­safnið í Winnipeg og heimsækja Nýja Ísland, byggðarlagið norður af Winnipeg þar sem margir Íslendingar settust að á 19. öld; þau munu blanda geði við aldraða Vestur-Íslendinga og taka þátt í viðburðum sem tengjast þingi Íslendingafélaga í Vesturheimi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við breytingar er íhaldinu ofviða

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við breytingar er íhaldinu ofviða
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Við erum enn á móti litasjónvarpi

Sigmundur Ernir skrifar: Við erum enn á móti litasjónvarpi
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Æskuást

Óttar Guðmundsson skrifar: Æskuást