fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Forsætisráðherra hvetur til varkárni vegna veðurs: „Og vera ekki á ferðinni að óþörfu“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 10. desember 2019 11:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hvetur fólk til að vera innandyra í dag og á morgun vegna ofsaveðursins sem spáð er. Hún hvetur fólk til að fara varlega og hugsa til þeirra sem eru á vaktinni vegna veðursins:

„Nú er spáð aftakaveðri um land allt. Ég hvet okkur öll til að fara varlega í dag og á morgun og vera ekki á ferðinni að óþörfu. Viðbragðsaðilar eru tilbúnir, Landsbjörg og björgunarsveitir um land allt, lögreglan og almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, starfsfólk sveitarfélaga, sjúkraflutningamenn og slökkvilið, Landhelgisgæslan og hafnarverðir, Vegagerðin, Veðurstofan og snjóeftirlitsmenn, ferðaþjónustufyrirtækin sem miðla upplýsingum í samstarfi við Safe travel, Samhæfingarmiðstöðin í Skógarhlíð sem mun tryggja að við séum öll á sömu blaðsíðu, Rauði krossinn og fjölmiðlar sem miðla upplýsingum til okkar allra. Og svo eru auðvitað margir fleiri sem þurfa að sinna sínum störfum þrátt fyrir veður og vinda. Þannig að förum varlega og hugsum til allra þeirra sem standa vaktina með okkur, ekki aðeins í dag og á morgun, heldur standa þá vakt árið um kring.“

Búist er við víðtækum samgöngutruflunum um land allt og rauðar og appelsínugulur viðvaranir eru í gildi. Verst verður veðrið á Norðvestanverðu landinu í kvöld og eru björgunarsveitir með mikinn viðbúnað.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“