fbpx
Þriðjudagur 09.desember 2025
Eyjan

Eyþór: Forsendur meirihlutasáttmálans og Viðreisnar brostnar

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 5. nóvember 2019 13:58

Eyþór Arnalds

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2020 og fimm ára áætlun 2020-2024 er til umræðu í borgarstjórn í dag.

Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, segir að áætlunin sýni að skuldir hækki stöðugt þvert á það sem standi í meirihlutasáttmálanum þar sem segir að skuldir skuli greiddar niður á meðan efnahagsástandið sé gott.

Hann bendir á í þessu samhengi að áætlunin geri ráð fyrir að skuldir og skuldbindingar samstæðu Reykjavíkurborgar muni hækka verulega frá þeirri áætlun sem gerð var fyrir kosningarnar 2018 og er nú gert ráð fyrir að skuldir verði heilum 64 milljörðum hærri árið 2022.

„Forsendur meirihlutasáttmálans og Viðreisnar eru því brostnar,“

segir Eyþór.

„Sjálfstæðisflokkurinn í borgarstjórn Reykjavíkur leggur til að þessari þróun verði snúið við með því að selja Gagnaveitu Reykjavíkur og að söluandvirðið verði nýtt til að lækka skuldir og fjármagnskostnað í samstæðu Reykjavíkurborgar. Þá leggjum við til að Malbikunarstöðin Höfði verði seld og að hagrætt verði í miðlægri stjórnsýslu borgarinnar um 5%,“

segir hann ennfremur.

Margt megi betur fara

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins munu leggja til fjölda tillagna í tengslum við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar,  m.a. að arðgreiðslum frá Orkuveitu Reykjavíkur verði ráðstafað til útsvarslækkana og að jöfn fjárframlög úr borgarsjóði verði greidd með börnum í grunn- og leikskólum borgarinnar, óháð rekstrarformi. Enn fremur að fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði fari úr 1,65% í 1,60% og að viðmiðunartekjur hækki til lækkunar fasteignaskatts og fráveitugjalds elli- og örorkulífeyrisþega.

Þá munu borgarfulltrúar flokksins aukinheldur leggja til að farið verði í rekstrarútboð fyrir þrjú af þeim sjö bílastæðahúsum sem Reykjavíkurborg rekur í dag og að skoðað verði að bjóða út rekstur sorphirðu í borginni í þeirri viðleitni að lækka kostnað við sorphirðu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Biðskylda

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Biðskylda
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Reiði skólameistarinn

Reiði skólameistarinn
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Fylgi Miðflokks eykst enn – Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar

Fylgi Miðflokks eykst enn – Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Miðflokkurinn kominn í tæp 20%

Miðflokkurinn kominn í tæp 20%
Eyjan
Fyrir 1 viku

Björg Magnúsdóttir: Er það til góðs að rífast við einhverja hagfræðinga um millistykki og bílastæði?

Björg Magnúsdóttir: Er það til góðs að rífast við einhverja hagfræðinga um millistykki og bílastæði?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Veikari fjölmiðlar þýða veikara lýðræði

Sigmundur Ernir skrifar: Veikari fjölmiðlar þýða veikara lýðræði
Eyjan
Fyrir 1 viku

Björg Magnúsdóttir: Pólitík ekki fyrir þá sem vilja bara þægilega innivinnu

Björg Magnúsdóttir: Pólitík ekki fyrir þá sem vilja bara þægilega innivinnu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Verðbólga fírast niður en vextir næst ákveðnir eftir rúma tvo mánuði

Verðbólga fírast niður en vextir næst ákveðnir eftir rúma tvo mánuði